21.8.2012 11:19:02
Starf forstöðumanns Þekkingarseturs Suðurnesja auglýst til umsóknar
Starf auglýst til umsóknar:
Forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja
Óskað er eftir öflugum stjórnanda í stöðu forstöðumanns nýs Þekkingarseturs Suðurnesja sem staðsett er að Garðvegi 1 í Sandgerði.
Meginhlutverk Þekkingarsetursins er að stuðla að rannsóknum og vera miðstöð rannsóknastarfs og rannsakenda í náttúrufræðum og tengdum greinum á Suðurnesjum. Setrinu er jafnframt ætlað að stuðla að margvíslegri háskólakennslu og fræðslustarfsemi og efla tengsl atvinnulífs, rannsókna- og fræðastarfs á svæðinu. Þannig skal stefnt að auknu frumkvöðlastarfi og nýsköpun, ásamt eflingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu.
Forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja ber m.a. ábyrgð á:
- öflun styrkja úr samkeppnissjóðum og utanumhald um styrkumsóknir,
- stefnumótun og útfærslu á starfsemi Þekkingarsetursins,
- fjármálum og rekstri,
- þróun samstarfsverkefna,
- starfsmannamálum,
- tengslum við innlenda og erlenda aðila.
Umsækjendur skulu hafa:
- háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi,
- hæfni, þekkingu og reynslu á rannsóknaumhverfi,
- reynslu af stjórnun og stefnumótun,
- frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum,
- leiðtogahæfileika,
- góða samskiptahæfni,
- gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram efni á skýran hátt.
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf auk yfirlits um námsferil og fyrri störf (CV). Umsóknir skulu merktar „Þekkingarsetur Suðurnesja“ og berast á rafrænu formi til Sandgerðisbæjar á netfangið: sandgerdi@sandgerdi.is. fyrir 1. september. Öllum umsóknum verður svarað.
Til baka
Prentvæn útgáfa |
Senda síðu | Senda á Facebook |
RSS