Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

FORSÍÐAFYRIRSPURNIRVEFTRÉPRENTA

EFNISVAL




Viðburðardagatal

20.6.2012 11:25:19

Kofabyggð í Sandgerðisbæ

Kofabyggð fyrir börn á aldrinum 6-12 ára (fædd 2000-2006) verður starfrækt frá 2. til 21. júlí. Um er að ræða skapandi námskeið þar sem börnin fá tækifæri til þess að nota ímyndunaraflið, læra  að meðhöndla verkfæri og eiga skemmtilega samveru með jafnöldrum sínum.

Skráning á námskeiðið fer fram á skrifstofu Sandgerðisbæjar til 1. júlí. Námskeiðið kostar 4.500 kr. sem greiðist við innritun og má nýta forvarnarstyrk til að mæta námskeiðskostnaði.

Kofabyggðin er staðsett í næsta nágrenni við skólagarðana. Mæting fyrsta daginn er við skólagarðana. Ef foreldrar eiga afgangs timbur og smíðaáhöld væri slíkt vel þegið. Börnin þurfa að hafa með sér nesti.

Frumkvæði að kofabyggðinni kemur frá Helga Friðbjörnssyni og verður hann leiðbeinandi í sjálfboðastarfi hluta af námskeiðinu. Aðrir leiðbeinendur eru Gabriela Barbara Galkowska og Elín Helgadóttir.

Hvetjum sem flest börn til að taka þátt í þessu skemmtilega námskeiði.
 




Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda síðu  | Senda á Facebook | RSS











Sandgerðisbær | Varðan, Miðnestorg 3 | 245 Sandgerði | Sími 420 7555 | Fax 423 7809 | Netfang: sandgerdi@sandgerdi.is