Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

FORSÍÐAFYRIRSPURNIRVEFTRÉPRENTA

EFNISVAL




Viðburðardagatal

11.6.2012 15:46:39

551. fundur bæjarráðs Sandgerðisbæjar

551. fundur

bæjarráðs,

haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3,

þriðjudaginn 22. maí 2012 og hófst hann kl. 17:30

Fundinn sátu:

Sigursveinn B. Jónsson, Sigrún Árnadóttir, Ólafur Þór Ólafsson, Guðmundur Skúlason, Magnús Sigfús Magnússon og Guðjón Þ. Kristjánsson.

Fundargerð ritaði: Guðjón Þ Kristjánsson.

Dagskrá:

1.

1205029 - EFF - Fjárhagsleg endurskipulagning - Trúnaðarmál.

Trúnaðarmál.

Afgreiðsla:

Niðurstaða bókuð í trúnaðarbók bæjarstjórnar bls. 3.
 

2.

1204067 - Trúnaðarmál

Trúnaðarmál - Trúnaði aflétt.

Fyrir fundinum liggur niðurstaða starfshóps um leikskólamál í Sandgerði, dags. 15. maí 2012.

Starfshópurinn leggur til að gengið verði til samninga við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Sólborgar til þriggja ára.

Afgreiðsla:

Málinu er vísað til umsagnar í fræðsluráði Sandgerðisbæjar og síðan til afgreiðslu á aukafundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 23. maí 2012.
 

3.

1205021 - Greiðslur fyrir dagvistun barna á Leikskólanum Sólborg

Erindi stjórnar Foreldrafélags leikskólans Sólborgar, dags. í maí 2012. Stjórnin lýsir furðu sinni yfir því að foreldrar greiði fyrir vistunartíma og morgunhressingu þá daga sem leikskólinn er lokaður vegna starfsmannafunda.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

4.

1112027 - Samrekstur Slökkvilis Sandgerðis og Brunavarna Suðurnesja

Á fundinum voru lögð fram gögn er varða húsnæðismál Slökkviliðs Sandgerðis og Brunavarna Suðurnesja.

Magnús S. Magnússon vék sæti af fundi vegna tengsla við málið. Ottó Þormar tók sæti hans á fundinum við afgreiðslu þess.

Bæjarstjóri fór yfir málið. Lagfæringar þurfa að fara fram á húsnæði Slökkviliðs Sandgerðis.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að þær 750.000,- kr. sem fyrir hendi eru til brunavarnarmála verði lagðar í þetta verkefni á þessu ári.
 

5.

1205022 - Umsókn um styrk vegna þátttöku í Norðurlandamóti í taekwondo - Karel Bergmann Gunnarsson

Tölvubréf dags. 13. maí 2012. þar sem Halldóra G. Sigtryggsdóttir sækir um styrk fyrir hönd Karels Bergmann sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Malmö í Svíþjóð með landsliði Íslands í taekwondo dagana 19. til 20. maí 2012.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Karel verði veittur styrkur að upphæð kr. 25.000,-.
 

6.

1205030 - Umsókn um styrk vegna þátttöku í Norðurlandamóti í taekwondo - Sverrir Örvar Elefsen

Bréf dags. 22. maí 2012. þar sem Ólafur Viggó Sigurðsson og Elva Dögg Sverrisdóttir sækja um styrk fyrir hönd Sverris Örvars Elefsen sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Malmö í Svíþjóð með landsliði Íslands í taekwondo dagana 19. til 20. maí 2012.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Sverri Örvari verði veittur styrkur að upphæð kr. 25.000,-.
 

7.

1205026 - Umsókn um styrk til hreinsunarstarfa

Erindi Tómasar Knútssonar fyrir hönd Bláa hersins dags. 24. apríl og 9. maí 2012, þar sem hann óskar eftir stuðningi vegna hreinsunarstarfa í Sandgerðisbæ.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 100.000,-.

Bæjarráð leggur þó áherslu á að sótt sé formlega um styrki til verkefna af þessu tagi áður en í þau er ráðist. Slíkar umsóknir verða teknar fyrir við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni.
 

8.

1205027 - Umferðarmál - hraðahindranir, bréf til bæjarráðs

Erindi Elínar Bjargar Gissurardóttur þar sem óskað er þrengingar í götuna við Breiðhól 11 vegna umferðarhraða.

Afgreiðsla:

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar húsnæðis-, skipulags- og byggingaráðs og óskar eftir heildrænni skoðun á aðgerðum til lækkunar umferðarhraða í bænum.
 

9.

1205028 - Boðun hluthafafundur í EFF

Boðað er til hluthafafundar í Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. fimmtudaginn 24. maí 2012.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri fer með atkvæði Sandgerðisbæjar á fundinum.
 

10.

1111057 - Úthlutun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2012

Bréf innanríkisráðuneytisins dags. 7. maí 2012, þar sem tilkynnt er um framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu.

Framlag til Sandgerðisbæjar árið 2012 er kr. 3.480.000,-.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

11.

1205005 - Tillaga að framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 26. apríl 2012 þar sem fram kemur tillaga að framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Vísað til fjölskyldu- og velferðarnefndar og starfshóps um uppbyggingu búsetuúrræða í Sandgerðisbæ og Sveitarfélaginu Garði.
 

12.

1205031 - Samkomulag við innanríkisráðherra

Erindi EFS til innanríkisráðherra dags. 2. maí 2012 og erindi Sandgerðisbæjar til innanríkisráðherra dags. 14. maí 2012, þar sem, lagt er til að gengið verði til samninga við Sandgerðisbæ til að bæta rekstur og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

13.

1205016 - Kynnisferð til Brussel.

Skýrt er frá námskeiði fyrir evrópskt sveitarstjórnarfólk sem fram fer í Brussel dagana 18. til 20. júní n.k.

Yfirskrift námkeiðsins er "Þátttaka íslenskra sveitarfélaga í byggðastefnu Evrópusambandsins".

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

14.

1202048 - Starfshópur um almenningssamgöngur á Suðurnesjum

Bæjarstjóri skýrði frá starfi starfshóps um almenningssamgöngur á Suðurnesjum.

Afgreiðsla:

Til kynningar.
 

15.

1205032 - Sandgerðisdagar 2012 - verkefnastjóri

Ólafur Þór Ólafsson vék sæti af fundinum við afgreiðslu málsins vegna tengsla við aðila þess. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir tók sæti hans á fundinum við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjóri skýrði frá því að hún og ferða- og menningarfulltrúi hefðu rætt við Bergnýju Jónu Sævarsdóttur um að taka að sér verkefnisstjórn vegna Sandgerðisdaga 2012. Hún hefur tekið þeirri málaleitan vel.

Afgreiðsla:

Til kynningar.
 

16.

1203005 - Kauptilboð í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja - Trúnaðarmál

Erindi Jóns Norðfjörð framkvæmdastjóra Kölku þar sem farið er yfir stöðu mála er varðar tilboð Triumvirate Environmental í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Þrátt fyrir þokkalegt kauptilboð TE telur bæjarráð Sandgerðisbæjar ekki rétt að ganga lengra með málið að sinni.
 

17.

1205019 - 75. fundur stjórnar Náttúrustofu Reykjaness

Fundargerð 75. fundar stjórnar Náttúrustofu Reykjaness. Fundurinn fór fram 11. janúar 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

18.

1205006 - Starfshópur um búsetuúrræði fatlaðs fólks

Fundargerð 1. fundar starfshóps um uppbyggingu búsetuúrræða í Sandgerði og Sveitarfélaginu Garði. Fundurinn fór fram 23. apríl 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

19.

1203075 - Skjalastjórnun hjá Sandgerðisbæ

Fundargerð 1. fundar starfshóps um skjalastjórnun hjá Sandgerðisbæ. Fundurinn fór fram 7. maí 2012.

Fundargerð 2. fundar starfshóps um skjalastjórnun hjá Sandgerðisbæ. Fundurinn fór fram 15. maí 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
 

20.

1205018 - 424. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja

Fundargerð 424. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Fundurinn fór fram 10. maí 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni yfir að Kristinn Halldórsson, fulltrúi Sandgerðisbæjar hafi tekið við formennsku í Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
 

21.

1205025 - Samkomulag Sandgerðisbæjar og innanríkisráðuneytisins - Önnur mál A)

Bæjarstjóri lagði fram fyrstu drög að samkomulagi Sandgerðisbæjar við innanríkisráðuneytið.

Hún fór yfir drögin.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Bæjarstjóra er falið að vinna áfram í málinu með það í huga að það verði tilbúið til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í júní.
 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:50

Sigursveinn B. Jónsson, sign.
Sigrún Árnadóttir, sign.
Ólafur Þór Ólafsson, sign.
Guðmundur Skúlason, sign.
Magnús Sigfús Magnússon, sign.
Guðjón Þ. Kristjánsson, sign.




Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda síðu  | Senda á Facebook | RSS











Sandgerðisbær | Varðan, Miðnestorg 3 | 245 Sandgerði | Sími 420 7555 | Fax 423 7809 | Netfang: sandgerdi@sandgerdi.is