Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

FORSÍÐAFYRIRSPURNIRVEFTRÉPRENTA

EFNISVAL




Viðburðardagatal

12.4.2012 16:29:13

546. fundur bæjarráðs Sandgerðisbæjar

546. fundur

bæjarráðs,

haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3,

þriðjudaginn 13. mars 2012 og hófst hann kl. 17:30

Fundinn sátu:

Ólafur Þór Ólafsson varaformaður, Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri, Guðrún Arthúrsdóttir varamaður, Guðmundur Skúlason ritari, Magnús Sigfús Magnússon áheyrnarfulltrúi og Guðjón Þ. Kristjánsson ritari.

Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.

Dagskrá:

1.

1203005 - Kauptilboð í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja - Trúnaðarmál

Frá 317. fundi bæjarstjórnar, 1. mál.

"Trúnaðarmál.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

Sigursveinn B. Jónsson lagði til að málinu yrði vísað til vinnslu í bæjarráði.

Til máls tóku: ÓÞÓ, SÁ, SBJ, HS, MSM.

Afgreiðsla:

Tillaga Sigursveins B. Jónssonar er samþykkt samhljóða.

Málinu er vísað til frekari vinnslu í bæjarráði."

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.

Afgreiðsla:

Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar seljanda komi á fund ráðsins og kynni málið.

Afgreiðslu málsins er frestað.
 

2.

1112027 - Drög að samningi við Brunavarnir Suðurnesja

Bæjarstjóri lagði fram drög að samkomulagi við Brunavarnir Suðurnesja.

Magnús S. Magnússon vék sæti við afgreiðslu þessa máls vegna tengsla við málið. Ottó Þormar tók sæti hans við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjóri fór yfir drögin ásamt fundarmönnum.

Rætt var um undirskriftalista íbúa.

Afgreiðsla:

Bæjarráð telur að breyta þurfi orðalagi 4. greinar og felur bæjarstjóra að vinna að því.

Samningnum verði vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjóra er falið að undirbúa kynningarbréf til íbúa fyrir 19. mars og borgarafund um málið fimmtudaginn 29. mars.
 

3.

1112061 - Þekkingarsetur Suðurnesja

Guðmundur Skúlason vék af fundi vegna tengsla við aðila málsins. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir tók sæti hans á fundinum.

Bæjarstjóri fór yfir málið.

Afgreiðsla:

Afgreiðslu frestað.
 

4.

1203018 - Útvíkkun á starfi aðalbókara

Fyrir fundinum liggur tillaga fjármálastjóra Sandgerðisbæjar dags. 8. mars 2012 um útvíkkun á starfi aðalbókara með það í huga að launavinnsla verði jafnframt á hans höndum.

Bæjarstjóri skýrði málið.

Afgreiðsla:

Bæjarráð styður tillögu fjármálastjóra.
 

5.

1201001 - Beiðni um leyfi til breytinga á landnotkun í aðalskipulagi.

Frá 469. fundi húsnæðis-, skipulags- og byggingarráðs, 1. mál (sjá 14.mál í þessari fundargerð).

"Guðmundur G. Haraldsson fyrir hönd landeigenda að Bala, Stafnesi, leggur fram beiðni um leyfi til breytinga á landnotkun í aðalskipulagi vegna fyrirhugaðs deiliskipulags á jörðinni.

Birgir Haraldsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls vegna tengsla við umsóknaraðila.

Umsóknin felur í sér leyfi bæjarins til breytingar á aðalskipulagi þar sem um er að ræða breytingar á landnotkun svæðisins.

Fagráð leggur til að bæjarstjórn heimili breytingu á aðalskipulagi svo komið verði til móts við eigendur jarðarinnar um frekari uppbyggingu á jörðinni."

Guðmundur Skúlason vék af fundi vegna tengsla við aðila málsins. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir tók sæti hans á fundinum.

Bæjarstjóri reifaði málið.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga húsnæðis-, skipulags- og byggingarráðs verði staðfest.
 

6.

1202066 - Viðhald götuljósakerfis

Fyrir fundinum liggja drög að samkomulagi við HS Veitur hf. um rekstur götuljósakerfis í Sandgerðisbæ. Um er að ræða endurnýjun á fyrri samningi.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samningurinn verði samþykktur.
 

7.

1203017 - Frumvarp til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs

Bréf umhverfisráðuneytisins dags. 2. mars 2012 þar sem óskað er athugasemda við drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, vegna innleiðingar á úrgangstilskipun 2008/98/EB.

Ólafur Þór Ólafsson kynnti umfjöllun umhverfisráðs Sandgerðisbæjar.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

8.

1201066 - Skólahreysti 2012 - umsókn um styrk

Frá 544. fundi bæjarráðs, 11. mál.

”Skólahreysti óskar eftir stuðningi við framkvæmd verkefnisins að upphæð kr 50.000,-.

Þeirri spurningu er varpað fram hvort frekar ætti að krefjast þátttökugjalds af þeim skólum sem taka þátt en leita styrkja hjá öllum sveitarfélögum landsins.

Guðrún Arthúrsdóttir vék af fundi vegna tengsla við aðila málsins. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir tók sæti hennar á fundinum

Afgreiðsla:

Bæjarráð telur rétt að fara þá leið sem kynnt er í erindinu og felst í því að keppnin sé fjármögnuð með aðgangseyri og þátttökugjöldum.

Afgreiðslu styrkbeiðni er frestað og bæjarstjóra og skólastjóra Grunnskóla er falið að vinna áfram í málinu.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að Grunnskólinn í Sandgerði muni senda lið til keppni í Skólahreysti í ár.“

Guðrún Arthúrsdóttir vék af fundi vegna tengsla við aðila málsins. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir tók sæti hennar á fundinum við afgreiðslu þessa máls.

Afgreiðsla:

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 50.000,-.

Bæjarráð fagnar þátttöku og árangri nemenda Grunnskólans í Sandgerði í Skólahreysti.
 

9.

1202031 - Starfsmannamál

Sólveig Guðrún Óskarsdóttir segir upp starfi sínu sem aðstoðarskólastjóri Leikskólans Sólborgar frá og með 1. mars 2012. Hún óskar jafnframt eftir að halda áfram starfi við stuðning við börn með málþroskafrávik og börn af erlendum uppruna í 75% starfi.

Hanna Gerður Guðmundsdóttir segir upp starfi sínu sem skólastjóri Leikskólans Sólborgar frá og með 31. maí 2012.

Friðbjörg Ósk Arnbjörnsdóttir leikskólakennari óskar eftir að minnka starfshlutfall sitt við Leikskólann Sólborgu í 75%.

Harpa Sif Sævarsdóttir segir upp starfi sínu við Íþróttamiðstöðina í Sandgerði frá og með 30. apríl n. k.

Ólafur Þór Ólafsson vék af fundi vegna tengsla við aðila málsins. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir tók sæti hans á fundinum við afgreiðslu þessa máls. Guðrún Arthúrsdóttir tók við stjórn fundarins við afgreiðslu málsins.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð þakkar Sólveigu Guðrúnu Óskarsdóttur störf hennar sem aðstoðarskólastjóri Leikskólans Sólborgar.

Bæjarráð þakkar Hönnu Gerði Guðmundsdóttur störf hennar sem skólastjóri Leikskólans Sólborgar.

Bæjarráð þakkar Hörpu Sif Sævarsdóttur störf hennar í þágu Íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði.
 

10.

1203008 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga

Tilkynnt er um aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga föstudaginn 23. mars 2012.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.
 

11.

1203010 - Efling sveitarstjórnarstigsins - skýrsla nefndar

Bréf innanríkisráðuneytisins dags. 2. mars 2012 þar sem skýrt er frá starfi nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Bréfinu fylgja vinnuskjal nefndarinnar og tillögur.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð vísar skýrslunni til starfshóps um endurskoðun á starfsháttum Sandgerðisbæjar.
 

12.

1203011 - Lýsing landsskipulagsstefnu 2013-2024

Skipulagsstofnun tilkynnir um Lýsingu á landsskipulagsstefnu 2013-2024. Erindið er dagsett 8. mars 2012. Gefinn er kostur á athugasemdum innan þriggja vikna frá auglýsingu.

Afgreiðsla:

Gögn send bæjarfulltrúum í tölvupósti til kynningar.
 

13.

1202065 - Svar við fyrirspurn Veðurstofu Íslands um veðurratsjá

Svar Geislavarna ríkisins dags. 23. febrúar 2012 við erindi Veðurstofu Íslands þar sem spurt er um veðurratsjá og styrk rafsegulgeislunar.

Afgreiðsla:

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að rafsegulgeislun sé innan viðmiðunarmarka.

Bæjarráð áréttar nauðsyn öryggisbúnaðar sem getið er um í skýrslunni og tryggir að slökkni á ratsjársendi ef hreyfing loftnets bregst og fer þess á leit við Veðurstofuna að hún upplýsi bæjaryfirvöld um hvort slíkur búnaður er til staðar.
 

14.

1201006F - Húsnæðis- skipulags- og byggingaráð - 469

Fundargerð 469. fundar húsnæðis-, skipulags- og byggingarráðs. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 7. mars 2012.

1. mál nr. 1201001 Beiðni um leyfi til breytinga á landnotkun í aðalskipulagi: Sjá 5. mál í þesari fundargerð.

2. mál nr. 1203007 Umsókn um stækkun lóðar Strandgata 21: Fram kom fyrirspurn um málið. Magnús S. Magnússon vék af fundi við umræðu um málið vegna tengsla við aðila þess.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Athugasemd kom fram um titil fundarmanna í upphafi fundargerðar.
 

15.

1111032 - Sandgerðisjörðin

Fundargerð frá fundi deildarstjóra umhverfis- og skipulagsmála hjá Sandgerðisbæ og Guðmundar G. Þórarinssonar verkfræðings um Sandgerðisjörðina. Fundurinn fór fram mánudaginn 27. febrúar 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

16.

1203009 - 638. fundur stjórnar SSS

Fundargerð 638. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 1. mars 2012.

2. mál. Dagsetning aukaaðalfundar: Vakin er athygli á aukaaðalfundi S.S.S. sem fram fer í Sandgerðisbæ föstudaginn 13. apríl n.k.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

17.

1203012 - 16. fundur Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja - Heklunnar

Fundargerð 16. fundar Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 1. mars 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

18.

1202069 - 794. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 794. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn fór fram föstudaginn 24. febrúar 2012.

Afgreiðsla:

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

19.

1203014 - Umhverfismál - Fyrirspurn. Önnur mál A)

Fram kom fyrirspurn frá Guðrúnu Arthúrsdóttur til deildarstjóra umhverfis- og skipulagsmála varðandi umhverfi og hirðingu nokkurra húsa og lóða í bæjarfélaginu.

Bæjarstjóri mun fylgja málinu eftir.
 

20.

1203027 - Samningur um matarkaup fyrir stofnanir bæjarins. Önnur mál B)

Bæjarráð ítrekar nauðsyn þess að samráðsfundir séu haldnir reglulega og fundargerðir komi til kynningar í bæjarráði svo tryggt sé að hlutirnir séu í samræmi við gildandi samning.
 

21.

1203028 - Starfshópur vegna breytinga á Garðvegi 1. Önnur mál C)

Breytingar á skipun í starfshóp vegna breytinga á Garðvegi 1.

Þjóðbjörg Gunnarsdóttir mun víkja úr starfshópnum og Guðrún Arthúrsdóttir taka sæti hennar.

Guðmundur Skúlason mun víkja úr starfshópnum og Hólmfríður Skarphéðinsdóttir taka sæti hans.
 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:21.

Ólafur Þór Ólafsson sign.

Sigrún Árnadóttir sign.

Guðrún Arthúrsdóttir sign.

Guðmundur Skúlason sign.

Magnús Sigfús Magnússon sign.

Guðjón Þ. Kristjánsson





Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda síðu  | Senda á Facebook | RSS











Sandgerðisbær | Varðan, Miðnestorg 3 | 245 Sandgerði | Sími 420 7555 | Fax 423 7809 | Netfang: sandgerdi@sandgerdi.is