12.4.2012 13:37:31
469. fundur húsnæðis-, skipulags- og byggingarráðs
469. fundur
Húsnæðis-, skipulags- og byggingarráðs,
haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3,
miðvikudaginn 7. mars 2012 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu:
Kristinn Halldórsson formaður, Grétar Sigurbjörnsson aðalmaður, Ingþór Karlsson aðalmaður, Haukur Andrésson 1. varamaður og Þórdís Marteinsdóttir 1. varamaður.
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson, deildarstjóri umhverfis- og skipulagsmála.
Dagskrá:
|
1. |
1201001 - Beiðni um leyfi til breytinga á landnotkun í aðalskipulagi. |
|
Guðmundur G. Haraldsson fyrir hönd landeigenda að Bala, Stafnesi, leggur fram beiðni um leyfi til breytinga á landnotkun í aðalskipulagi vegna fyrirhugaðs deiliskipulags á jörðinni.
Birgir Haraldsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls vegna tengsla við umsóknaraðila.
Umsóknin felur í sér leyfi bæjarins til breytingar á aðalskipulagi þar sem um er að ræða breytingar á landnotkun svæðisins.
Fagráð leggur til að bæjarstjórn heimili breytingu á aðalskipulagi svo komið verði til móts við eigendur jarðarinnar um frekari uppbyggingu á jörðinni.
|
|
|
|
|
2. |
1203007 - Umsókn um stækkun lóðar, Strandgata 21 |
|
Eigendur rýma við Strandgötu 21 óska eftir heimild til stækkunar á lóð. Óskað er eftir því að tekið verði af lóð nr. 19 við Strandgötu skv. meðfylgjandi lóðauppdrætti.
Fagráð heimilar stækkun lóðarinnar á kostnað lóðar nr. 19 við Strandgötu. Lóð nr. 19 er ekki til þess fallin að unnt verði að byggja á henni, þar sem breidd hennar er ekki talin nægileg til þess. Grenndarkynna þarf erindið og er byggingarfulltrúa falið að sjá um það.
Fagráð beinir þeim tilmælum til lóðarhafa Strandgötu 21 að þeir girði af lóðina sína með portlokun þegar stækkunin hefur tekið gildi. Núverandi kvaðir á lóðinni vegna umferðar og aðgengis að mannvirkjum lóðarinnar verði óbreytt nema ósk um annað komi frá eigendum.
|
|
|
|
|
3. |
1201026 - Eyrargata 1, umsókn um gámastæði á lóð |
|
Ársæll Ármannsson sækir um leyfi fyrir gámaporti við hús sitt að Eyrargötu 1, skv. meðfylgjandi lóðauppdrætti.
Fagráð samþykkir erindið en bendir jafnframt á að skilmálum um eldvarnir og fjarlægðir skv. ákvæðum byggingarreglugerðar verði framfylgt í hvívetna. Fagráð beinir þeim tilmælum til lóðarhafa Eyrargötu 1 að þeir girði af lóðina sína með portlokun.
|
|
|
|
|
4. |
1201027 - Eyrargata 3, umsókn um gámasvæði á lóð |
|
Dagur Ingimundarson sækir um leyfi fyrir gámaporti við hús sitt að Eyrargötu 3, skv. meðfylgjandi lóðauppdrætti.
Fagráð samþykkir erindið en bendir jafnframt á að skilmálum um eldvarnir og fjarlægðir skv. ákvæðum byggingarreglugerðar verði framfylgt í hvívetna. Fagráð beinir þeim tilmælum til lóðarhafa Eyrargötu 3 að þeir girði af lóðina sína með portlokun.
|
|
|
|
|
5. |
1201080 - Umsókn um byggingarleyfi, skýli yfir ammoníaktanka og lagnir |
|
Pétur Bragason, fyrir hönd Ara Leifssonar hjá Skinnfiski, sækir um leyfi til byggingar á skýlum yfir tanka utan við húsið, norðanmegin, skv. fyrirliggjandi teikningum.
Samþykkt af byggingarfulltrúa þ. 25.1.2012.
Fagráð gerir engar athugasemdir við afgreiðslu byggingarfulltrúa.
|
|
|
|
|
6. |
1201072 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting á innra skipulagi, svalahurð út úr stofu og minnkun glugga í gangi. |
|
Páll Gíslason fyrir hönd Staftrés ehf, sækir um leyfi til smávægilegra breytinga á útliti hússins að Vallargötu 39. Einnig er um smávægilegar breytingar á innra skipulagi að ræða.
Samþykkt af byggingarfulltrúa þ. 25.1.2012.
Fagráð gerir engar athugasemdir við afgreiðslu byggingarfulltrúa
|
|
|
|
|
7. |
1203006 - Fyrirspurn um byggingarleyfi, stækkun verkstæðis |
|
Sólplast ehf. leggur fram fyrirspurn um leyfi til stækkunar á byggingu fyrir plastsmíði að Strandgötu 21.
Byggingarfulltrúi samþykkti byggingaráform umsóknaraðilans í tengslum við stækkun lóðarinnar. Samþykkt byggingaráforma gefur þó umsóknaraðila ekki leyfi til að hefja framkvæmdir fyrr en fullnaðargögn liggja fyrir.
Fagráð gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu byggingarfulltrúa.
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19.00
Kristinn Halldórsson sign.
Grétar Sigurbjörnsson sign.
Ingþór Karlsson sign.
Haukur Andrésson sign.
Þórdís Marteinsdóttir sign.
Til baka
Prentvæn útgáfa |
Senda síðu | Senda á Facebook |
RSS