Sandgerði - Fréttir http://sandgerdi.tonaflod.is/ Sandgerði - Fréttir <![CDATA[Sumarvinna Sandgerðisbæjar]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4457 Wed, 22 May 2013 21:29:35 GMT Sandgerðisbær býður ungmennum á aldrinum 17 til 20 ára vinnu í sumar.
Helstu verkefni eru snyrting og umhirða bæjarlandsins.
Aðeins er hægt að taka inn takmarkaðan fjölda einstaklinga.
Forgang að vinnu hafa þeir sem eru 17 ára, þá þeir sem eru 18 ára og svo framvegis.
Umsóknareyðublöð fást á heimasíðu Sandgerðisbæjar http://www.sandgerdi.is og á bæjarskrifstofunni.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 30. maí.

]]>
<![CDATA[Gleðigjafar á vortónleikum]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4456 Wed, 22 May 2013 17:52:18 GMT Vortónleikar og skólaslit Tónlistarskóla Sandgerðis fóru fram í Safnaðarheimilinu í Sandgerði fimmtudaginn 16. maí.

Athöfnin hófst með því að skólastjóri fór í stuttu máli yfir starf skólaársins, síðan tóku nemendur við og léku af sinni alkunnu snilld á hljóðfærin sín. Upphafsatriði tónleikanna var samspil allra gítarnemenda skólans, fyrir valinu var lag frá Perú, Dansa Peruviana, sem hljómaði vel í eyrum og gestir klöppuðu nemendum lof í lófa fyrir flutninginn. Dagskráin var fjölbreytt og byggðist að miklu leyti upp á samspili, í lokin stóðu allir nemendur uppi sem sigurvegarar og sannir gleðigjafar eftir frábæra frammistöðu.

]]>
<![CDATA[Tímabundið viðbótarálag á fasteignaskatt lagt af um næstu áramót]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4455 Fri, 17 May 2013 13:10:28 GMT Á fundi bæjarstjórnar 8. maí sl. var samþykkt samhljóða að á næsta ári verði fellt niður 25% tímabundið viðbótarálag á fasteignaskatt íbúðarhúsnæðis, en viðbótarálagið var lagt á árin 2012 og 2013. Ákvörðun um niðurfellingu álagsins er tekin í ljósi þess árangurs sem náðst hefur við endurskipulagningu á rekstri og skuldum bæjarfélagsins.

]]>
<![CDATA[Regnbogafáninn tákn um baráttu fyrir mannréttindum]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4454 Fri, 17 May 2013 12:18:26 GMT Alþjóðlegur baráttudagur gegn fælni gagnvart samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki er haldinn 17. maí ár hvert.

Af þessu tilefni er regnbogafána flaggað í dag og þannig sýndur stuðningur við mannréttindi öllum til handa og vinnu gegn fordómum og útskúfun.

]]>
<![CDATA[Góð þátttaka í umhverfisviku í Sandgerði]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4453 Wed, 15 May 2013 10:44:12 GMT
Nýlega var haldin umhverfisvika í Sandgerði í tengslum við dag umhverfisins 25. apríl sl. Íbúar bæjarins voru hvattir til að hreinsa rusl og snyrta umhverfið og voru viðbrögð mjög góð. Gámar voru staðsettir við áhaldahús í lok vikunnar þar sem tekið var við rusli án endurgjalds og voru gámarnir fljótir að fyllast og gott betur en það.
Grunnskólinn og leikskólinn tóku þátt í umhverfisvikunni með umhverfismennt og útiveru. Nemendur grunnskóla og leikskólabörn tóku líka virkan þátt í að hreinsa bæinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
]]>
<![CDATA[473. fundur húsnæðis-, skipulags- og byggingaráðs Sandgerðisbæjar]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4452 Tue, 14 May 2013 15:59:53 GMT
473. fundur húsnæðis-, skipulags- og byggingaráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, mánudaginn 29. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:00
]]>
<![CDATA[275. fundur fræðsluráðs Sandgerðisbæjar]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4451 Tue, 14 May 2013 14:58:06 GMT 275. fundur fræðsluráðs, haldinn í Grunnskólanum í Sandgerði, mánudaginn 22. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:00

]]>
<![CDATA[68. fundur fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4450 Tue, 14 May 2013 14:37:15 GMT
68. fundur fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga haldinn í Vörðunni, fimmtudaginn 18. apríl 2013 og hófst hann kl. 16:15
]]>
<![CDATA[573. fundur bæjarráðs Sandgerðisbæjar]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4449 Tue, 14 May 2013 14:28:42 GMT
573. fundur bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 23. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:30
]]>
<![CDATA[572. fundur bæjarráðs Sandgerðisbæjar]]> http://sandgerdi.tonaflod.is/v.asp?page=591&Article_ID=4448 Tue, 14 May 2013 14:06:16 GMT
572. fundur bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, miðvikudaginn 10. apríl 2013 og hófst hann kl. 17:30
]]>