 |
| Umhverfisráðherra kíkir í smásjá hjá starfsmanni BIOICE |
BioIce -
Botndýrarannsóknarstöðin
Garðvegi 1. 245, Sandgerði
Sími: 423 7870
GSM: 897 8007
Í Sandgerði er rannsóknarstöð þar sem flokkuð eru botndýr af Íslandsmiðum. Botndýrarannsóknarstöðin í Sandgerði er í sama húsi og Fræðasetrið. Þar er unnin rannsóknarvinna sem er einstök í heiminum. Rannsóknarskip fara um Íslandsmið undir stjórn vísindamanna og taka sýni fyrir Rannsóknarstöðina á botndýrum, sem er grunnflokkuð.Vísindamenn koma víða að úr heiminum til að fá að vinna með sýnin í Rannsóknarstöðinni í Sandgerði og nú þegar hafa fundist nýjar tegundir fyrir heiminn.
Í Fræðasetrinu í Sandgerði er að finna safn sýna frá Rannsóknarstöðinni. Það eru sýni af botndýrum frá Íslandsmiðum. Botndýrasafn Fræðasetursins er eitt sinnar tegundar í heiminum.
Áætlaður tími til skoðunar er um 1 klukkustund.