Með opnun á nýrri heimasíðu fyrir Sandgerðisbæ er tekin upp ný tækni til að koma á framfæri upplýsingum til að auka þekkingu bæjarbúa á málefnum síns sveitarfélags.
Aðrir sem hafa áhuga á málefnum sveitarfélagsins geta fræðst um staðhætti, sögu, stofnanir, fyrirtæki og ekki síst markmið bæjarstjórnar í einstökum málum eða málaflokkum.
Bæjarstjórn hefur tekið ákvörðun um að upplýsingatæknin verði nýtt til heilla fyrir samfélagið, Suðurnesin og í raun fyrir landið allt.
Öllum ábendingum um málefni sveitarfélagsins er rétt að koma á framfæri við starfsfólk á skrifstofu Sandgerðisbæjar og verður þeim gerð góð skil á heimasíðu eftir því sem hægt er og tilefni gefast til.
Það er von bæjarstjórnar að heimasíðan verði fólki til ánægju og fróðleiks.
Við skulum hafa í huga gamla þjóðvísu sem á vissan hátt getur átt við hér þegar við höfum í huga fagurt umhverfi við sjávarsíðu og ferksvatnstjarnir;
„Þegar lundin þín er hrelld
-þessum hlýddu orðum,-
gakktu með sjó og sittu við eld
svo kvað völvan forðum."
Verið velkomin til Sandgerðisbæjar og á heimasíðu bæjarfélagsins.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.