
Garðveg 1, 245 Sandgerði
Sími: 423 7458
Fax: 423 7551
Netfang:
nr@nr.is Vefur:
www.nr.is Forstöðumaður:
Sveinn Kári Valdimarsson
GSM: 863 4754
Náttúrustofa Reykjaness er staðsett í Sandgerði, á Garðvegi 1, og er í sama húsnæði og Fræðasetrið, Botndýrastöðin og Háskólasetur Suðurnesja. Að Botndýrastöðinni standa Hafrannsóknastofnunin, Háskóli Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands, þannig má segja að á Garðvegi 1 sé komin upp áhugaverður vísir að litlu vísindasamfélagi. Rekstrarsveitarfélög Náttúrustofu Reykjaness eru Grindavíkur- og Sandgerðisbær.
Starfsmenn stofunnar eru fjórir, Sveinn Kári Valdimarsson sem veitir stofunni forstöðu. Hann er líffræðingur frá Háskóla Íslands og lauk doktorsprófi í dýrafræði frá Háskólanum í Glasgow. Sveinn hefur aðallega fengist við atferlis- og vistfræðirannsóknir á laxfiskum. Linda Björk Holm er ritari og aðstoðarmaður. Sigríður Kristinsdóttir er líffræðingur frá Háskóla íslands og er í meistaranámi við sama skóla. Hennar helsta verkefni kallast Þjóðgarðar í Sjó en það snýr að á möguleikum friðunar hafsvæða við fiskveiðistjórnun og umhverfisvernd. Verkefnið er hluti af meistarasnámi Sigríðar við Háskóla Íslands. Hún stýrir einnig vinnu við kortlagningu fjörugerða en unnið er að því að flokka búsvæði og kortleggja fjörur Reykjanesskagans í samvinnu við Líffræðistofnun Háskólans, Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskólasetur

Suðurnesja. Gunnar Þór Hallgrímsson er líffræðingur frá Háskóla Íslands og er í doktorsnámi við sama skóla. Helstu verkefni Gunnars eru á sviði fuglafræði en mörg verkefni eru í vinnslu á því sviði. Þannig fylgist Gunnar mjög náið með sílamáfsvarpinu á Miðnesheiði en samkvæmt gögnum frá 1995 er það eitt hið stærsta í heimi. Athuganir á sílamáfsvarpinu felast meðal annars í að skoða aðferðir sem nota megi til fækkunar máfsins en bent hefur verið á vandamál tengdu svo stóru varpi í nágrenni alþjóðaflugvallar. Samhliða rannsóknum á sílamáfi sem unnar eru í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands og Háskólans vinnur Gunnar m.a. að athugunum á sendlingum í samstarfi við skoska aðila, æðarfugli í samstarfi við Háskólann í Glasgow, eiturefnavistfræði í samstarfi við Stokkholmsháskóla og vöktun arnarstofnsins í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrustofu Vestfjarða, Náttúrustofu Vesturlands og Fuglavernd.
Auk ofnataldra verkefna sinnir stofan ýmsum öðrum verkefnum. á sviði náttúruvísinda og umhverfismála á starfsvæði stofunnar. Náttúrustofa Reykjaness hefur átt samstarf við tilraunaeldisstöð Hafrannsóknarstofnunarinnar á Stað við Grindavík með rannsóknir á þorski. Stofan vaktar skólpmengun á Suðurnesjum í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og Þorvald Örn Árnason kennara og náttúrfræðing í Vogum og athuganir á lífríki Kleifarvatns eru stundaðar í samvinnu við Náttúrufræðistofu Kópavogs. Ótalin eru þau samstarfsverkefni sem náttúrustofan á með þeim stofnunum sem eru undir sama þaki að Garðvegi 1.
Hjá Náttúrustofu Reykjaness hefur verið lögð áhersla á náið og gott samstarf við innlendar sem erlendar rannsóknastofnanir. Enda er það ein frumforsenda þess að littlar stofnanir geti náð að dafna. Námsverkefni hafa verið áberandi enda mikilvægt að kynna svæðið fyrir námsfólki og auka á fjölbreytni náms á svæðinu. Líkt og lögin (lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60 frá 1992, með síðari breytingum frá árinu 2002) kveða á um, safnar stofan gögnum og heimildum um náttúrufar Reykjanesskagans, þar er veitt fræðsla og ráðgjöf um umhverfismál og náttúrufræði og hefur hún sinnt verkefnum fyrir sveitarfélög, ríki, einstaklinga, fyrirtæki og aðra aðila.
| Gunnar með sílamáfsunga á Miðnesheiði |
.jpg&ext=jpg&w=250&h=333) |
|
| Sigríður við kynningu á verkefni sínu á alþjóðlegri ráðstefnu um vernduð hafsvæði |
.jpg&ext=jpg&w=250&h=188) |
|
| Linda Björk við sýnatöku við innsiglinguna í Grindavík |
.jpg&ext=jpg&w=250&h=188) |
|
| Gert klárt fyrir sýnatöku úr Kleifarvatni |
.jpg&ext=jpg&w=250&h=188) |
|
| Sveinn Kári að taka sýni við höfnina í Garði |
.jpg&ext=jpg&w=250&h=188) |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|