Garðvegi 1, 245 Sandgerði
Sími: 525 4610, 525 5226

Netfang:
jorundur@hi.is Vefur Háskólaseturs SuðurnesjaMeginhlutverk Háskólasetursins er að efla rannsókna- og fræðastarf Háskóla Íslands á Suðurnesjum með því að
a. stuðla að margvíslegri háskólakennslu á Suðurnesjum, eftir því sem kostur er, bæði í tengslum við grunn- og framhaldsnám, og stuðla að því að haldin verði norræn og/eða alþjóðleg námskeið í Háskólasetrinu,
b. efla tengsl skora, deilda og stofnana Háskóla Íslands og tengsl annarra íslenskra rannsóknastofnana við atvinnu- og þjóðlíf á Suðurnesjum,
c. efla, í samvinnu við rannsóknastofnanir og háskóla, rannsóknir á náttúru Suðurnesja og á náttúru Íslands,
d. stuðla að auknum rannsóknum á hverju því viðfangsefni, sem vert er að sinna á Háskólasetrinu.
Auk þess vinnur Háskólasetrið að þeim verkefnum sem stjórn Háskólasetursins og/eða stjórn Stofnunar fræðasetra fela henni, í umboði rektors og háskólaráðs eða í umboði ráðuneyta.
Formaður er skipaður samkvæmt tilnefningu rektors og Háskólinn skipi tvo fulltrúa, einn fulltrúi verði tilnefndur af Sandgerðisbæ, einn fulltrúi frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og að einn fulltrúi komi frá Sjávarútvegsráðuneytinu.