Yfirstjórn fræðslumála er í höndum 5 manna skólaráðs sem hefur umsjón með málefnum leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í umboði bæjarstjórnar. Sandgerðisbær er í samstarfi við Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar sem annast þjónustu við skólastjórnendur. Fræðsluskrifstofa fylgist með framkvæmd skólahalds og sér um áætlanagerð og almennt eftirlit með skólastarfi. Sandgerðisbær hefur lagt áherslu á að fjölga réttindakennurum í leik -og grunnskólum. Bæjarfélagið styrkir nema í grunnnámi til kennsluréttinda og einnig þá sem stunda framhaldsnám við KHÍ. Meðal annars fá allir nemar fartölvur frá bæjarfélaginu. Allir kennarar við skólann hafa fartölvur frá og með þessu skólaári.
Sveitarfélagið er aðili að samstarfi um rekstur Fjölbrautaskóla Suðurnesja og tekur þátt í samstarfi við nokkra framhaldssóla og háskóla Í bæjarfélaginu er rekinn rannsóknarstöð, fræðasetur, náttúrustofa og Háskólasetur Suðurnesja.
Bókasafn
Bókasafnið er skóla- og bæjarbókasafn bæjarfélagsins. Safnið er nýlega flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði í Vörðunni Miðnestorgi 3. Bókasafnið er opið Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 11-18,
fimmtudaga frá kl. 14-20 og föstudaga frá kl. 11-17.
Framhaldsskóli
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna og nemendur hans koma frá öllum byggarlögum svæðisins. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum (Sandgerði, Garður, Reykjanesbær,
Grindavík, og Vogar) reka skólann í samstarfi við ríkisvaldið.
Grunnskóli
Sandgerðisbær hefur lokið framkvæmdum við einsetningu grunnskólans með stækkun á húsnæði skólans og þarf ekki að ráðast í frekari framkvæmdir á því sviði fyrr en íbúatalan verður um 2000 manns. Nemendur eru nú 268 og starfsmenn eru 47. Mikil áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu á sérkennslu fyrir nemendur og hefur húsnæðið tekið mið af þörfum á því sviði. Bæjarfélagið leggur áherslu á lífsleiknideild sem er starfrækt við skólann og hefur verið mikil ánægja með þá viðbót við hefðbundið skólastarf. Bæjarfélagið býður uppá ferðir fyrir grunnskólabörn sem eru í fjarlægð við skólann. Skóladagvistun er rekinn í skólanum. Vistunargjald er hægt að sjá í gjaldskrá bæjarfélgasins.
Í skólanum er boðið upp á hádegismat. Nemendur koma til með að greiða kr. 210 fyrir hverja máltíð. Bæjarfélagið mun greiða niður annan kostnað.
Háskólasetur Suðurnesja
Í Sandgerðisbæ er rekið Háskólasetur Suðurnesja. Meginhlutverk Háskólasetursins er að efla rannsókna- og fræðastarf Háskóla Íslands. Markmið stofnunarinnar er m.a. að stuðla að margvíslegri háskólakennslu á Suðurnesjum, eftir því sem kostur er, bæði í tengslum við grunn- og framhaldsnám, og stuðla að því að haldin verði norræn og / eða alþjóðleg námskeið í Háskólasetrinu.
Leikskóli
Leikskólinn Sólborg, er starfræktur á vegum bæjarfélagsins. Í leikskólanum eru nú 119 börn á fjórum deildum. Um 120 börn voru á aldrinum 0-5 ára í sveitarfélaginu í árslok 2004. Tímagjald má sjá í gjaldskrá bæjarfélgsins. Nýlega er búið að stækka leikskólann og endurbyggingja eldri hluta hans.
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
Miðstöð Símenntunar Suðurnesjum býður upp á fjölbreytt nám og námskeiðahald fyrir alla þá sem áhuga hafa á því að endurmennta sig í leik og starfi. MSS býður einnig upp á fjarnámsþjónustu við nokkra framhaldsskóla á Íslandi. Skoðaðu vef MSS og kynntu þér nánar starfsemi og þjónustu þeirra.
Tónlistarskóli
Um 140 nemendur stunda tónlistarnám í Tónlistarskóla Sandgerðis. Tónlistarskólinn er staðsettur í sama húsnæði og Grunnskóli Sandgerðis sem auðveldar nemendum á grunnskólaaldri að sækja tónlistarnám. Boðið er upp á kennslu á hin ýmsu hljóðfæri t.d. trompet, básúnu, horn, túbu, þverflautu, blokkflautu, gítar, bassa, slagverk, píanó og fiðlu. Einnig er kenndur söngur, samsöngur og samspil, auk tónfræðigreina. Tónlistarskólinn er í góðu samstarfi við Grunnskólann og Leikskólann Sólborg.
Skólagarðar og kofabyggð
Á sumrin eru skólagarðar og kofabyggð starfrækt við Sjávarbraut. Það eru krakkar 7 til 12 ára sem taka þar þátt. Undanfarin sumur hefur kofabyggðin verið rekin í samvinnu við BYKÓ og þá undir heitinu BYKO byggð.
Vinnuskóli
Vinnuskóli er starfandi á sumrin og eiga nemendur í 7. til 10. bekk grunnskólans kost á því að fá vinnu hjá bæjarfélaginu. Nánari upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu bæjarfélgsins í síma 420 7555.