Íþrótta- og tómstundastarf á vegum Sandgerðisbæjar er unnið undir stjórn íþrótta- og tómstundaráðs. Íþrótta- og tómstundafulltrúi er starfsmaður ráðsins og stýrir starfsseminni á vegum þess.
Markmið íþrótta- og tómstundaráðs Sandgerðisbæjar er að vinna að eflingu íþrótta- og tómstundastarfs meðal bæjarbúa. Til að ná þessu markmiði fer fram fjölbreytt starf sem skiptist á fimm svið.
Þau eru:
- Íþróttamannvirki
- Félagsmiðstöðin Skýjaborg
- Miðhús, þjónustumiðstöð eldri borgara
- Sumarstarf
- Tenglastarf
Í öllu starfi á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Sandgerðisbæjar eru eftirfarandi þættir hafðir að leiðarljósi:
- ÞJÓNUSTA - SAMVINNA - VIRKNI - FAGMENNSKA - FORVARNIR -
Þjónusta
- Þjónustutilboð höfði til sem flestra bæjarbúa.
- Ánægja sé meðal verulegs meirihluta bæjarbúa með þá þjónustu sem veitt er.
- Þjónusta sé ávallt í takt við það besta sem gerist í sambærilegum sveitarfélögum.
Samvinna
- Efla innbyrðis samvinnu milli mismunandi sviða.
- Efla samvinnu við aðrar deildir Sandgerðisbæjar.
- Efla samvinnu við íþróttafélög sem og önnur félagasamtök og stofnanir í bænum.
- Efla samvinnu milli íþróttafélaga, frjálsra félagasamtaka og annara stofnanna í Sandgerði.
Virkni
- Stuðla að aukinni þátttöku bæjarbúa í íþróttum og tómstundum.
- Starfsólk sé virkt og sýni frumkvæði í starfi.
- Auka virkni íþróttafélaga, annara frjálsra félaga og stofnanna í Sandgerði.
Fagmennska
- Leitast við að auka fagmennsku í öllu starfi.
- Efla fagmennsku með aukinni þjálfun, fræðslu og endurmenntum starfsfólks.
- Aukin fagmennska leiðir til aukins trausts bæjarbúa til starfs á vegum íþrótta- og tómstundaráðs.
- Aukin fagmennska leiðir til bættrar þjónustu við bæjarbúa og betra starfs.
- Fagmennsku sé gætt í fjármálastjórnun, þannig að fjárhagsáætlanir fái staðist sem og að þær gefi raunhæfa mynd af fjármagnsþörf starfsins.
Forvarnir
- Efla forvarnir í Sandgerði, einkum fyrir börn og unglinga.
- Áhersla á forvarnir í útivistarmálum, vímu- og tóbaksvörnum.
- Allt starf á vegum íþrótta- og tómstundaráðs endurspegli þessa áherslu á forvarnir.