Þjónusta við fatlaða
Sú þjónusta sem fatlaðir fá sérstaklega, þ.e. fyrir utan almenna félagsþjónustu er liðveisla og ferðaþjónusta. Liðveisla er veitt skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Þeir sem eiga rétt á liðveislu eru fatlaðir einstaklingar sem eru 6 ára og eldri. Bæjarfélagið veitir fötluðum einstaklingum ferðaþjónustu skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Þjónustunni er ætlað að koma til móts við þá sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki til nauðsynlegra athafna. Þjónustan miðast við þarfir hvers og eins.
Sandgerðisbær á og rekur bifreið sem notuð er til að aka fötluðum sem á því þurfa að halda m.a. til Reykjavíkur. Aðrir fatlaðir fá akstur þeim að kostnaðarlausu innan bæjarfélagsins. Sú þjónusta er aðkeypt og í tengslum við skólaakstur bæjarfélagsins. Sandgerðisbær greiðir allan kostnað af akstri á milli bæjarfélagsins og Reykjanesbæjar og á það við um fatlaða sem og aðra bæjarbúa.
Ókeypis er fyrir öryrkja í sund í Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði.