24. febrúar 2010
54. fundur
Fundargerð 54. fundar Íþróttaráðs Sandgerðisbæjar
Fundur var haldinn í Íþróttaráði Sandgerðisbæjar miðvikudaginn 24.. febrúar. 2010 kl. 18:00 í Vörðunni Miðnestorgi 3.
Fundinn sátu: Sigursveinn B. Jónsson, formaður. K- lista, Elín Björg Gissurardóttir D- lista, Lóa B. Gestsdóttir S- lista og Guðjón Þ. Kristjánsson.
Dagskrá:
1. Vaktaskipulag og opnunartími í Íþróttamiðstöð. Guðjón fór yfir valkosti vegna vaktaáætlunar í íþróttamiðstöðinni. Eftir starfslok fyrrverandi forstöðumanns þarf að endurskoða skiptingu starfa þar. Fram kemur að til að halda núverandi opnunartíma óskertum vantar upp á starfshlutfall starfsmanna, ekki síst þegar rætt er um að einn starfsmaður sinni störfum vaktstjóra í 25% starfi. Guðjón lagði fram vaktatöflur miðað við eftirfarandi kosti: 1. Núverandi áætlun. Samkvæmt þessari áætlun hefur það gerst að starfsmenn eru komnir umfram ráðningarhlutfall sitt sem nemur u. þ. b. 27% þrátt fyrir að búið sé að seinka opnun sundlaugar frá kl. 6:00 til 7:00. 2. 2 á vakt um helgar Ef fækkað er á helgarvöktum niður í 2 manneskjur á laugardögum og sunnudögum fer umfram ráðningarhlutfallið niður í u.þ.b. 9%. 3. Lokun á sunnudögum Með því að loka á sunnudögum næst rétt ráðningarhlutfall. 4. 5 konur í 75% starfi. Ef aukið er 25% við þær tvær konur sem nú eru í 50% vinnu upp í 75%, þannig að allar konur við íþróttamiðstöðina verði í 75% vinnu næst rétt ráðningarhlutfall. 5. 3 konur í 75% starfi og 3 konur í 50% starfi Ef bætt er við einni manneskju í 50% starf næst rétt ráðningarhlutfall. Þessi kostur er heppilegri en kostur 4 í gerð vaktaáætlana.
Íþróttaráð mælir með valkosti nr. 5 og leggur til að fjárhagslegar forsendur þess kosts verði kannaðar með tilliti til markmiða fjárhagsáætlunar.
2. Ráðning starfsfólks Auglýst hefur verið eftir starfsmanni í kvennaklefa í 50% starf þar sem einn starfsmaður hefur látið af störfum. Eftirfarandi umsóknir bárust: Ásta Laufey Sigurjónsdóttir. Birgitta Maríudóttir Olsen. Dircelene Gomes Almeida. Guðrún Inga Sigurðardóttir. Harpa Sif Sævarsdóttir. Hrefna Kristinsdóttir. Margrét J. Magnúsdóttir. Sveinbjörg Eydís Eiríksdóttir.
Farið var yfir umsóknirnar. Eftirtaldir aðilar eru taldir hæfastir:
Guðrún Inga Sigurðardóttir. Harpa Sif Sævarsdóttir. Margrét J. Magnúsdóttir.
3. Skipan í nefnd um Íþróttamann ársins í Sandgerðisbæ 2009. Íþróttaráð tilnefnir fulltrúa sína í nefnd um kjör Íþróttamanns ársins 2009 í Sandgerðisbæ. Fulltrúar ráðsins verða: Elín Björg Gissurardóttir og Lóa B. Gestsdóttir.
4. Tilnefning íþróttaráðs til Íþróttamanns ársins í Sandgerðisbæ 2009 Íþróttaráð tilnefnir Dagmar Þráinsdóttur knattspyrnukonu sem Íþróttamann ársins í Sandgerðisbæ 2009.
5. Önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. Fundagerð ritaði Lóa B. Gestsdóttir.
_________________________________ Sigursveinn B. Jónsson.
_________________________________ Elín Björg Gissurardóttir.
_________________________________ Lóa B. Gestsdóttir.
_________________________________ Guðjón Þ. Kristjánsson.
Til baka
|
|