26. janúar 2010
494. fundur
494. fundur Bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 26. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Ólafur Þór Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerðin var skráð á bls. 280 í fundargerðarbók Bæjarráðs Sandgerðisbæjar.
Dagskrá:
1. 1001083 - GSG, tölvubréf 19.01.10.
Tölvubréf frá stjórn Golfklúbbs Sandgerðis dags. 19. janúar 2010.
Afgreiðsla: Eftirtaldir fulltrúar stjórnar Golfklúbbsins mættu á fundinn. Guðmundur Einarsson, Hafþór Birgisson og Sturla Þórðarson. Farið var yfir styrki Sandgerðisbæjar til Golfklúbbs Sandgerðis. Málinu vísað til næstu endurskoðunar fjárhagsáætlunar. Bæjarráð leggur áherslu á að stjórn Golfklúbbsins vinni minnisblað fyrir bæjarráð um verkefni vegna stækkunar Kirkjubólsvallar í ljósi breyttra efnahagsaðstæðna fyrir 7. apríl.
2. 1001080 - Verkfr.stofa Suðurnesja, samn. um tæknivinnu, 19.01.10.
Samningur milli Verkfræðistofu Suðurnesja og Sandgerðisbæjar um tæknivinnu og ráðgjöf.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð mælir með því að bæjarstjórn staðfesti samninginn enda er hann í samræmi við drög sem áður komu til kynningar.
3. 1001084 - Minnisblað frá byggingarfulltrúa, 18.01.10.
Minnisblað frá embætti byggingarfulltrúa varðandi útboð á stækkun Miðhúsa, þjónustumiðstöð fyrir aldraða.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
4. 1001082 - Grunnskólinn í Sandgerði, beiðni um aukið fjármagn, 19.01.10.
Óskað er eftir aukafjármagni vegna tímabundinnar skólavistar í Björkinni. Farið er fram á kr. 700.000,-.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
5. 1001093 - Klébergsskóla, dags. 22.12.09.
Trúnaðarmál.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
6. 1001089 - F.C. Kajak, styrkbeiðni, 18.01.10.
Knattspyrnufélagið F.C. Kajak óskar eftir styrk frá Sandgerðisbæ. Farið er fram á svipaðan styrk og félagið hefur fengið á undanförnum árum.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að félagið fái sama styrk og á árinu 2009.
7. 1001092 - Dagmar Þráinsdóttir, styrkbeiðni 11.01.10
Dagmar óskar eftir stuðningi Sandgerðisbæjar til að iðka íþrótt sína með meistaraflokki Grindavíkur vegna þess að samstarfi GRV. er lokið og þess vegna enginn starfandi meistaraflokkur kvenna í Sandgerðisbæ.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað. Í framhaldi af þessu máli beinir bæjarráð þeim tilmælum til íþróttaráðs að það hefji undirbúning að tillögum að afrekssjóði Sandgerðisbæjar fyrir fjárhagsáætlunargerð ársins 2011.
8. 1001090 - Sigurjón Jónsson, bréf dags. 20.01.10.
Erindi vegna fasteignaskulda á Strandgötu 10.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar málið er til skoðunar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna málið með lögfræðingi bæjarins.
9. 1001087 - Fjölsmiðjan í Reykjanesbæ, janúar 2010.
Undirbúningshópur Fjölsmiðjunnar í Reykjanesbæ boðar til stofnfundar Fjölsmiðjunnar miðvikudaginn 3. febrúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu stjórnar SSS sem fer með þau málefni sem eru á sameiginlegum vettvangi allra sveitarfélaga á Suðurnesjum.
10. 1001067 - Keilir, stofnframlag Tækni- og vísindabókasafn, dags. 12.01.10.
Keilir á Ásbrú hefur komið upp Orku- og tækniskóla með orkurannsóknarsetri. Skólinn fer fram á stuðning við að koma upp vönduðu bókasafni, Tækni og vísindabókasafni Íslands. Farið er fram á stuðning við að koma bókasafninu á laggirnar. Sérstaklega er óskað eftir frjálsum framlögum, bókum og tímaritum á sviði tækni og vísinda.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð vísar erindinu til forstöðumanns bæjarbókasafnsins til skoðunar og tillögugerðar.
11. 1001088 - Kalka, urðunarstaður á Stafnesi, 20.01.10.
Bréf umhverfisstjóra Kölku vegna urðunarstaðar á Stafnesi.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12. 1001050 - Umhverfisstofnun, vegna refaveiða, dags. 05.01.10.
Í bréfi Umhverfisstofnunar kemur fram að stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að hætta að endurgreiða sveitarfélögum framlag til veiðimanna vegna veiða á ref.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
13. 1001086 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, 14.01.10.
Áætlun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um greiðslur almennra jöfnunarframlaga árið 2010. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að framlag til Sandgerðisbæjar verði samtals kr. 51.417.217,-. Er þá meðtalin leiðrétting vegna ársins 2008.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Framlagið er samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2010.
14. 1001096 - Fyrirtæki og stofnanir á flugstöðvarsvæði.
Upplýsingar úr Fasteignaskrá. Skrá yfir fyritæki og stofnanir á flugstöðvarsvæði í Sandgerðisbæ.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
15. 1001085 - Vegagerðin, bréf dags. 08.01.10.
Í bréfinu er fjallað um afstöðu Vegagerðarinnar til breytinga á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005 - 2025, niðurfellingu landnotkunar innan Reykjanesbæjar. Bréfinu fylgja afrit af áliti eftirtalinna aðila: > Landsnet. > Fornleifavernd ríkisins. > Skipulagsstofnun.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
16. 1001091 - SSS., samgöngukort á Suðurnesjum
Samgöngukort yfir stórauknar samgöngur á svæði Sv. Garðs, Reykjanesbæjar og Sandgerðisbæjar.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
17. 1001079 - Jafnréttisstofa, bréf dags. 18.01.10.
Óskað er eftir liðsinni við dreifingu hvatningarbæklings Jafnréttisstofu og Samgönguráðuneytisins. Í bæklingnum eru konur hvattar til þátttöku í framboði til sveitarstjórnarkosninga.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
18. 1001081 - Brunamálastofnun, minnisblað 14.01.10.
Tölvupóstur frá Brunamálstofnun og minnisblað frá Brunamálastofnun og Sambandi sveitarfélaga ásamt minnisblaði nr. 2 frá Flugmálastjórn.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
19. 1001068 - Fjármálaeftirlitið, bréf dags. 14.01.2010.
Greinargerð Fjármálaeftilitsins um eftirlitsgjald á útgefendur hlutabréfa og skuldabréfa árið 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
20. 1001066 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, bréf dags. 14.01.10.
Staðfesting samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis á móttöku fjárhagsáætlunar Sandgerðisbæjar fyrir árið 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
21. 1001039 - Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf dags. 07.01.10.
Tilkynning ráðuneytisins um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2010. Samkvæmt tilkynningunni fara prófin í 10. bekk fram 20. til 22. september 2010, próf í 4. og 7. bekk fara fram 23. og 24. september 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
22. 1001095 - Opni Háskólinn, námskeið. - Hvatningarstyrkur Sandgerðisbæjar
Opni háskólinn í HR ásamt Ad Astra býður nemendum á aldrinum 11 - 15 ára upp á námskeið undir handleiðslu vísindamanna.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar íþróttaráðs, hvort Hvatningarstyrkur Sandgerðisbæjar verði nýtanlegur til greiðslu námskeiðisgjalda við Opna háskólann í HR og sambærilegra námskeiða.
23. 1001029 - Kadeco, samstarfssamningur, dags. des. 2009.
Tilkynning bæjarráðs Reykjanesbæjar um samþykkt þess á samstarfssamningi milli Sv. Garðs, Sandgerðisbæjar, Reykjanesbæjar og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. um samliggjandi skipulags- og athafnasvæði umhverfis Keflavíkurflugvöll, Ásbrú Norður.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
24. 1001037 - Önnur mál A) 1001037
Trúnaðarmál lagt fram. Ekkert bókað.
25. 1001109 - Önnur mál B)
Fyrirspurn bæjarstjóra vegna 1. máls, Fjárhagsáætlun 2010, 6. liður, málsnúmer 0910039, á fundi bæjarráðs frá 8. desember 2009, en þar er bókað:
Á 490. fundi í bæjarráði sem haldinn var í vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 8. desember 2009 var bókað neðanritað m. a. undir 1. máli, 6. lið: "Samningar. Endurskoðun á árinu 2010. Afgreiðsla: Samningar um matarkaup fyrir Miðhús, Leikskóla og grunnskóla renna út í maí. Bæjarráð vekur athygli á að samninginn verður að taka til endurskoðunar á árinu 2010".
Afgreiðsla: > Í framhaldi af fyrirspurn bæjarstjóra leggur bæjarráð til að umræddur samningur og aðferðarfræði um gerð nýs samnings verði vísað til nýrrar bæjarstjórnar.
> Lagt er til við núverandi bæjarstjórn að gildandi samningur verði framlengdur til 1. júní 2010.
26.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30
Óskar Gunnarsson sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson sign. Ólafur Þór Ólafsson sign. Guðjón Þ. Kristjánsson sign.
Til baka
|
|