13. janúar 2010
493. fundur
493. fundur Bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 12. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Ólafur Þór Ólafsson, Haraldur Hinriksson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerðin var skráð á bls. 279 í fundargerðarbók Bæjarráðs Sandgerðisbæjar.
Dagskrá:
1. 1001031 - Forsendur fyrir þriggja ára áætlun Sandgerðisbæjar, 2011-2013. Fjárhagsáætlun 2010 afgreiðsla til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fyrir lágu forsendur fyrir þriggja ára áætlun Sandgerðisbæjar 2011 - 2013. Bæjarstjóri lagði fram og fór yfir Þriggja ára áætlun Sandgerðisbæjar 2011 - 2013. Hann lagði einnig fram endanlega tilögu bæjarráðs til síðari umræðu bæjarstjórnar um Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010.
Afgreiðsla: Haraldur Hinriksson B- lista tók þátt í afgreiðslu fyrsta liðar í dagskránni. Þriggja ára áætlun afgreidd úr fyrri umræðu í umboði bæjarstjórnar til síðari umræðu í bæjarstjórn. Fjárhagsáætlun 2010 samþykkt samhljóða til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim fyrirvörum sem aðilar meiri- og minnihluta kunna að gera við endanlega afgreiðslu bæjarstjórnar.
2. 1001026 - Sigurbjörg Eiríksd., bréf dags. 04.01.10.
Í bréfinu óskar Sigurbjörg Eiríksdóttir þess fyrir hönd dánarbús Jónu Guðríðar Arnbjörnsdóttur að Sandgerðisbær skoði möguleika þess að leysa til sín íbúð í Miðhúsum Suðurgötu 17.
Afgreiðsla: Lagt fram. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa í samræmi við reglur.
3. 1001036 - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál. Málsnúmer 1001036
Afgreiðsla: Ekkert bókað. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4. 1001035 - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál. Málsnúmer 1001035
Afgreiðsla: Ekkert bókað. Bæjarstjóra falið að vinna áfram í málinu.
5. 1001029 - Kadeco, samstarfssamningur, dags. des. 2009.
Drög að samstarfssamningi Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. Einnig Áfangaáætlun fyrir Ásbrú - Norður.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6. 1001028 - Samningur milli Barnaverndarnefndar Sandgerðisbæjar,Garðs, Voga og Barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar, dags. 06.01.10.
Samningurinn fjallar um fyrirkomulag bakvakta vegna barnaverndar- og hælisleitendamála.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð fagnar þessari niðurstöðu.
7. 1001025 - Verkþáttalisti fyrir starfsmenn Sandgerðishafnar.
Í listanum er farið yfir dagleg störf starfsmanna á hafnarsvæði.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð þakkar starfsmönnum vel unna verkáætlun.
8. 1001034 - Tölvubréf frá Vinnumálastofnun, 07.01.10.
Í bréfinu er stórátak Vinnumálastofnunar til sköpunar nýrra tækifæra fyrir unga atvinnuleitendur kynnt. Átakið er í 5 liðum og verður kynnt fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum í Virkjun þriðjudaginn 12. janúar.
Afgreiðsla: Lagt fram.
9. 1001021 - KEF, Skipulagsnefnd breyting á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar kynnir breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005 - 2025, niðurfellingu landnotkunar innan Reykjanesbæjar. Umsagnar er óskað fyrir 15. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram. Vísað til húsnæðis- skipulags- og byggingarráðs.
10. 0912074 - HS Orka hf., bréf dags. 17.12.09.
Minnisblað vegna sölu lands og auðlinda á Reykjanesi. Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins.
Afgreiðsla: Lagt fram til upplýsingar.
11. 1001001 - Reykjanesbær, bréf dags. 29.12.09., aukið samstarf innan HS Veitna hf.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar óskar viðræðna um aukið samstarf sveitarfélaga á þjónustusvæði HS Veitna.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að uppfæra verðmat eigna Sandgerðisbæjar fyrir bæjarstjórn. Bæjarstjóra er jafnframt falið að ræða málið við aðra eignaraðila að HS Veitum hf.
12. 1001019 - Samkeppniseftirlitið, opinber útboð, bréf dags. 23.12.09.
Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2009 - Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir.
Afgreiðsla: Lagt fram.
13. 1001030 - Athugasemdir við Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024, 05.01.10.
Ábendingar Reynis Sveinssonar, Ólafs Gunnlaugssonar og Sigurðar H. Guðjónssonar við greinargerð vegna skipulags Sandgerðis 2008 - 2024. Ábendingarnar eru unnar að beiðni bæjarstjórnar.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð þakkar framangreindum aðilum vel unnar ábendingar.
14. 1001027 - Íþróttamiðstöð Sandgerðis, greiðslufyrirkomulag.
Greiðslufyrirkomulag á kortum í þreksal. Vinnuferli fyrir starfsmenn í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar.
Afgreiðsla: Lagt fram.
15. 1001012 - Félags- og tryggingamálaráðuneytið, húsaleigubætur, bréf dags. 04.01.10.
Frá og með 1. janúar 2010 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta kr. 5.918.453,-.
Afgreiðsla: Lagt fram.
16. 1001013 - Félags- og tryggingamálaráðuneytið, félagslegar íbúðir, bréf dags. 04.01.10.
Frá og með 1. janúar 2010 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001 eftirfarandi:
Tekjur fyrir einstakling 3.610.000,- kr. Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 604.000,- kr. Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 5.055.000,- kr. Eignamörk verða 3.897.000,- kr.
Afgreiðsla: Lagt fram.
17. 1001037 - Önnur mál 1001037
Breytingar á starfsmannahaldi Íþróttamiðstöðvar. Íþróttafulltrúa er falið að auglýsa tvær stöður starfsmanna íþróttamiðstöðvar sem losnað hafa. Önnur staðan er fastráðning, en hin er afleysing til 6 mánaða frá og með 1. febrúar 2010.
18. 1001040 - Önnur mál B)
Fram var lagt tölvubréf frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum um kynnisferð fyrir unga sveitarstjórnarmenn til Brussel 1. til 4. febrúar 2010 í boði framkvæmdastjórnar ESB.
19.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:40
Óskar Gunnarsson sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson sign. Ólafur Þór Ólafsson sign. Haraldur Hinriksson sign. Guðjón Þ. Kristjánsson sign.
Til baka
|
|