30. desember 2009
492. fundur
492. fundur Bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 29. desember 2009 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Ólafur Þór Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerðin var skráð á bls. 278 í fundargerðarbók Bæjarráðs Sandgerðisbæjar.
Dagskrá:
1. 0912077 - Trúnaðarmál, dags. 04.12.09.
Trúnaðarmál. Lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla: Ekkert bókað. - Málið er í vinnslu.
2. 0912076 - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál. Lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla: Ekkert bókað.- Málið er í vinnslu.
3. 0912072 - Golfklúbbur Sandgerðis, bréf dags. 18.12.09.
Bréf frá ritara Golfklúbbs Sandgerðis dags. 18. desember 2009 þar sem skýrt er frá aðalfundi klúbbsins.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð bendir á að framlag bæjarins ákvarðast á hverju ári af fjárhagsáætlun hverju sinni og leggur til að samningur við Golfklúbb Sandgerðis verði tekinn til skoðunar strax og betur árar. Bæjarráð telur rétt að kalla stjórn Golflúbbs Sandgerðis á sinn fund til að fara yfir málin.
4. 0912068 - KEF., brunavarnir á Keflavíkurflugvelli, bréf dags 16.12.09.
Bréf frá Keflavíkurflugvelli ohf. vaðandi brunavarnir á Keflavíkurflugvelli.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn sendi málið til skoðunar hjá Guðjóni Bragasyni, lögmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Herði Felixsyni lögfræðingi bæjarfélagsins. Bæjarráð mun funda með Keflavíkurflugvelli ohf. þegar skoðun lögmannanna liggur fyrir.
5. 0912069 - Varnarmálastofnun, aðalskipulag, bréf dags. 21.12.09.
Bréf Varnarmálastofnunar varðandi Aðalskipulag og takmarkanir vegna ratsjárstöðvarinnar H1.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
6. 0912070 - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, bréf dags. 17.12.09.
Lögreglustjóri tilkynnir að embætti hans hætti rannsókn á ætluðum skemmdarverkum 26. júlí 2009 í Grunnskóla Sandgerðis
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð harmar skemmdarverk innan sveitarfélagsins og bendir á að bærinn hefur gripið til uppsetningar öryggiskerfa og öryggismyndavéla í stofnunum bæjarfélagsins til að koma í veg fyrir slíkt.
7. 0912074 - HS Orka hf., bréf dags. 17.12.09.
Tilkynning um ráðstöfun á landi og jarðhitaréttindum HS Orku hf. Einnig bréf bæjarstjóra Sandgerðisbæjar þar sem hann mótmælir skömmum fresti til gerðar athugasemda og óskar eftir viðræðum um málið og málsmeðferðina.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Svarfrestur hefur verið framlengdur að beiðni bæjarstjóra. Afgreiðslu málsins er því frestað til fundar bæjarráðs 12. janúar 2010.
8. 0912071 - Ferðamálasamtök Suðurnesja, vettvangsferð, bréf dags. 10.12.09.
Bréf formanns Ferðamálasamtaka Suðurnesja þar sem skýrt er frá vettvangsferð stjórnar samtakanna um Suðurnesin þann 18. nóvember 2009. Í bréfinu koma fram ábendingar um merkingar á áhugaverðum stöðum í Sandgerðisbæ fyrir ferðamenn.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Vísað til ferða- og menningarráðs.
9. 0912073 - Kadeco, tölvubréf um samning um samstarf á norðursvæði, dags. 18.12.09.
Tölvubréf verkefnastjóra Kadeco frá 18. desember 2009 þar sem fjallað er um samning um samstarf á norðursvæði. Í bréfinu kemur fram að Keflavíkurflugvöllur ohf. hyggst ekki verða formlegur aðili að samstarfinu.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarráð harmar afstöðu Keflavíkurflugvallar ohf. Bæjarráð óskar eftir því að fá að sjá uppfærð drög að samkomulagi áður en lengra er haldið.
10. 0912028 - Fjárhagsáætlun 2010.
Gögn áður lögð fram.
Afgreiðsla: Bæjarráð leggur til að leiga á íbúðum bæjarins hækki í samræmi við breytingar á leiguvísuitölu frá nóvember 2009 og breytingar taki gildi 1. mars 2010.
11. 0912050 - Almannavarnir Suðurnesja, bréf dags. 11.12.09.
Í bréfinu er fjallað um sameiningu Almannavarna Suðurnesja og Keflavíkurflugvallar og tilkynnt um hverjir verða fulltrúar Keflavíkurflugvallar í sameinaðri Almannavarnarnefnd.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
12. 0912075 - Náttúrustofa Vesturlands, bréf dags. 14.12.09.
Í bréfinu er lagt til að Ísland verði umverfisvottað sem heild. Bréfinu fylgir greinargerð Náttúrustofu Vesturlands um umhverfisvottun Íslands.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
13. 0912078 - Önnur mál A)
Bæjarstjóri lagði fram samninga kennara varðandi greiðslu matarkostnaðar.
Bæjarráð leggur til að farið verði eftir samningum hvað þetta varðar.
14. 0912079 - Önnur mál B)
Bæjarstjóri fór yfir tillögu að samningi Sandgerðisbæjar við Verkfræðistofu Suðurnesja varðandi tæknivinnu og ráðgjöf. Samningurinn mun gilda til 5. maí 2010. Bæjarstjóri hefur farið yfir samninginn og gert á honum breytingar í samræmi við umræður á bæjarstjórnarfundi. Bæjarráð mælir með að samningurinn verði samþykktur með framangreindum breytingum.
15.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30
Til baka
|
|