22. desember 2009
491. fundur
491. fundur Bæjarráðs, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, þriðjudaginn 22. desember 2009 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Ólafur Þór Ólafsson, Haraldur Hinriksson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerð þessi var skráð á bls. 277 í fundargerðarbók Bæjarráðs Sandgerðisbæjar.
Dagskrá:
1. 0912053 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, v. nýbúafræðslu, bréf dags. 14.12.09.
Jöfnunarsjóður tilkynnir um úthlutun framlags vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2010. Framlag sjóðsins til Sandgerðisbæjar eru kr. 2.860.000,-. Frestur til að senda inn leiðréttingar eða ný gögn vegna breyttrar kennslu eða lögheimilisskráningar er til 1. mars 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram og vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010. Vísað til skólastjórnenda til yfirferðar. Vísað til skólastjóra Grunnskóla til yfirferðar á forsendum fyrir 1. mars 2010.
2. 0912058 - Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, v. fatlaðra nemenda, bréf dags. 14.12.09.
Jöfnunarsjóður tilkynnir um úthlutun framlags vegna fatlaðra nemenda á fjárhagsárinu 2010. Framlag sjóðsins til Sandgerðisbæjar eru kr. 6.480.000,-. Frestur til að senda inn leiðréttingar eða ný gögn vegna greininga á nemendum er til 1. mars 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram og vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010. Vísað til skólastjórnenda til yfirferðar. Vísað til skólastjóra Grunnskóla til yfirferðar á forsendum fyrir 1. mars 2010.
3. 0912065 - Lex lögmannsstofa, tölvubréf 17.12.09.
Tilboð eigenda eignarhluta úr landi Bæjarskerja Norðurs vegna sölu á landi. Um er að ræða samtals 11.910 fermetra og hljóðar tilboðið upp á kr. 6.200.000,-.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til að mat fari fram hjá matsnefnd eignarnámsbóta á því landi sem bærinn þarfnast eða 4.530 fermetra þar sem samningar nást ekki við landeigendur þrátt fyrir ítrekaðar samningaviðræður. Um er að ræða svæði 4 í tilboði landeigenda.
4. 0912063 - Minnisblað frá Byggingafulltrúa, 07.12.09.
Minnisblað byggingarfulltrúa vegna aðgengis fatlaðra við félagsmiðstöðina Skýjaborg. Fram kemur að kostnaður við uppsetningu skábrautar er áætlaður kr. 400.000,-.
Afgreiðsla: Lagt fram og vísað til viðhaldsliðar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.
5. 0912055 - SSS., fjárhagsáætlun sameiginlegra rekinna stofnana fyrir árið 2010
Fjárhagsáætlun sameiginlegra rekinna stofnanna Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fjárhagsárið 2010. Samkvæmt áætluninni er hlutur Sandgerðisbæjar kr. 38.684.000,-.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til að hluti Sandgerðisbæjar verði samþykktur og er málinu vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.
6. 0912057 - Félags- og tryggingamálaráðuneytið, v. fjárhagsaðstoðar, bréf dags. 15.12.09.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið sendir leiðbeinandi viðmið um grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga. Hækkun á milli ára nemur 8,63%.
Afgreiðsla: Lagt fram og vísað til félagsmálstjóra og afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.
7. 0912039 - Vinnuskýrslur kennara 2009-2010
Fræðsluskrifstofa sendir yfirfarin gögn vegna rekstrar Grunnskólans í Sandgerði skólaárið 2009 til 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram og vísað til skólastjórnenda Grunnskóla.
8. 0912059 - Siglingastofnun, v. samgönguáætlunar, bréf dags. 15.12.09.
Siglingastofnun sendir upplýsingar varðandi Samgönguáætlun 2009 - 2012, viðskiptaáætlun hafnarsjóðs. Hafnarsjóður þarf að senda viðskiptaáætlun sína varðandi heimiluð verkefni fyrir 15. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram. Hafnarráði er falið að rita Siglingastofnun bréf til að fresta framkvæmdum til ársins 2011.
9. 0912044 - Varasjóður, söluframlög varasj. húsnæðismála, bréf dags. 09.12.09.
Varasjóður húsnæðismála tilkynnir að ekki verði um greiðslur úr sjóðnum að ræða til sveitarfélaga á árinu 2009. Framlög falla niður þar sem samkomulag ríkis og sveitarfélaga fellur niður frá og með næstu áramótum.
Afgreiðsla: Lagt fram.
10. 0912043 - Ferlir, bréf dags. 10.12.09.
Gönguhópurinn Ferlir, áhugafólk um sögu, minjar og umhverfi Reykjanesskagans óska eftir styrk/auglýsingu frá Sandgerðisbæ til að halda úti heimasíðu. Farið er fram á kr. 5.000,-.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til að erindinu verði hafnað.
11. 0912028 - Fjárhagsáætlun 2010.
Tekin voru fyrir málefni er varða Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010. Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála eftir fund með endurskoðendum bæjarins. Hann rakti hugmyndir KPMG um útreikning og skýrslugerð vegna mismunandi leiða varðandi eignarhald á húsnæði Grunnskólans í Sandgerði. Fram kom að kostnaður við slíka úttekt og skýrslugerð er verulegur. Bæjarstjóri lagði fram yfirlýsingu um veðbönd vegna Skólastrætis 2 Sandgerðisbæ. Unnið var úr athugasemdum og ábendingum sem fram komu við fyrri umræðu á 287. fundi bæjarstjórnar.
Afgreiðsla: Í ljósi nýrrar stöðu í fjárahagsáætlunarvinnunni leggur bæjarráð til að síðari umræða bæjarstjórnar um Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010 fari fram miðvikudaginn 20. janúar 2010 ásamt afgreiðslu þriggja ára áætlunar og bæjarráð fundi í millitíðinni þriðjudaginn 29. desember 2009 og þriðjudaginn 12. janúar 2010.
12. 0912064 - HS. Veitur hf., boðun hluthafafundar, 07.12.09.
Stjórn HS Veitna boðar til hluthafafundar þriðjudaginn 29. desember 2009 kl. 14:00.
Afgreiðsla: Lagt fram. Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið umboð bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar á fundinum.
13. 0912054 - Samkeppniseftirlitið, skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni, bréf dags. 16.12.09.
Samkeppniseftirlitið hefur gefið út álit nr. 3/2009 Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Vísað til húsnæðis- skipulags- og byggingarráðs.
14. 0912061 - Hollvinir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, bréf dags. 15.12.09.
Bréf Hollvina Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þar sem þeir vekja athygli á því misræmi sem hefur verið í rekstarkosnaði við hinar ýmsu heilbrigðisstofnanir. Framlag ríkisins til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur verið áberandi lægra en til annarra sambærilegra stofnanna. Hollvinir Heilbrigðisstofnunarinnar telja að nú sé komið að því að lagfæra það misræmi sem verið hefur á framlagi til heilbrigðisstofnanna.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
15. 0912050 - Almannavarnir Suðurnesja, bréf dags. 11.12.09.
Almannavarnarnefnd Suðurnesja tilkynnir um samþykkt þess efnis að sameina Almannavarnarnefnd Suðurnesja og Almannavarnarnefnd Keflavíkurflugvallar.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
16. 0912049 - Sveitarfélagið Vogar, afrit af bréfi 08.12.09.
Bréf Sveitarfélagsins Voga þar sem bæjarráð lýsir yfir áhuga á að vinna að framgangi "Eldfjallagarðs á Reykjanesi á vettvangi Reykjanesfólksvangs".
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
17. 0912060 - Aðalskipulag Sandgerðisbæjar, fundur 15.12.09.
Fundargerð 14. fundar stýrihóps um Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 15. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram.
18. 0912056 - Deildarstjórafundur 15.12.09.
Fundargerð deildarstjórafundar hjá Sandgerðisbæ. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 15. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram.
19. 0912062 - Samv.nefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja, 07.12.09.
Fundargerð 15. fundar Samvinnunefndar um Svæðisskipulag Suðurnesja. Fundurinn fór fram mánudaginn 7. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram.
20. 0912066 - Önnur mál A)
Fram kom fyrirspurn varðandi slæm hlustunarskilyrði útvarpssendinga í Sandgerðisbæ.
Afgreiðsla: Bæjarstjóra er falið að kann málið hjá Mílu og útvarpsstöðvum.
21.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
Óskar Gunnarsson sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson sign. Ólafur Þór Ólafsson sign. Haraldur Hinriksson sign. Guðjón Þ. Kristjánsson sign.
Til baka
|
|