26. janúar 2010
49. fundur
49.Fundur Umhverfisráðs Sandgerðisbæjar haldinn þriðjudaginn 26.janúar 2010 kl.19:00 í sal Miðhúsa.
Dagskrá: 1.mál. Reglur varðandi hunda/kattahald til samþykktar. 2.mál. Tillaga að verkefnum í Sandgerðisbæ 2010. 3.mál. Önnur mál.
Mætt eru: Kolbrún Vídalín, Frímann Grímsson, Tómas Knútsson, Fríða Birna Andrésdóttir, Eyþór Haraldsson.
1.mál.Reglur varðandi hunda/kattahald til samþykktar. Gerir Umhverfisráð athugasemd við 2.gr. lið a. síðustu málsgrein (sama á við ef um er að ræða parhús eða raðhús),vill ráðið fella þessa málsgrein út úr samþykkt um hundahald. Leggjum við til að efnt verði til sérstaks skráningar átaks hunda/katta næst komandi vor í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja.
2.mál. Tillaga að verkefnum í Sandgerðisbæ 2010. Tökum við undir tillögur byggingafulltrúa í fegrun bæjarfélagsins,telur ráðið jafnframt að liður S. á minnisblaði byggingafulltrúa sé forgangsverkefni ,þar sem öryggi íbúa sé tryggt með gerð hringtorgs við Byggðarveg-Sandgerðisveg. 3.mál. Önnur mál. Þykir stjórnarmönnum dugleysi bæjaryfirvalda varðandi Strandgötu (Jóns Erlingshús) til skammar.Umhverfisráð hefur lagt ófáar tillögur fram varðandi húsnæðið án nokkurs árangura.
Fundargerð lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 21.10.
Til baka
|
|