20. janúar 2010
452. fundur
452. fundur Húsnæðis- skipulags- og byggingarráð, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, miðvikudaginn 20. janúar 2010 og hófst hann kl. 18.00
Fundinn sátu: Carl Granz, Júlíus Einarsson, Ester Grétarsdóttir, Davíð Benónýsson, Óskar Jóhannsson,
Fundargerð ritaði: Birgir Haraldsson, Byggingarfulltrúi
Formaður býður fundarmenn velkomna og óskar eftir að taka fyrir mál undir liðnum Önnur mál.
Dagskrá:
1. 1001021 - KEF, Skipulagsnefnd breyting á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025
Breyting á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025, niðurfelling landnotkunar innan Reykjanesbæjar. Lagt fram til umsagnar fagráðs. Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar gerir engar athugasemdir við framkomna tillögu Skipulagsnefndar keflavíkurflugvallar.
2. 0904027 - Leysisendingar sem kunna að ógna öryggi loftfars við Keflavíkurflugvöll, bréf dags. 03.04.09.
Keflavíkurflugvöllur ohf óskar eftir að notkun á leysigeislum í umdæmi Sandgerðisbæjar, verði háð leyfi Keflavíkurflugvallar ohf, hverju sinni. Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar gerir engar athugasemdir við framkomna tillögu Keflavíkurflugvallar ohf og mun hér óska umsagnar tilheyrandi yfirvalda við væntanleg umsóknarferli.
3. 1001030 - Athugasemdir við Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024, 05.01.10.
Lagðar fram athugasemdir við greinargerð vegna Aðalskipulags Sandgerðis. Umsagnaraðilar eru þeir Reynir Sveinsson, Ólafur Gunnlaugsson og Sigurður Guðjónsson.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar þakkar umsagnaraðilum þeirra þátt í ferlinu og vonast eftir áframhaldandi aðstoð í framtíðinni ef á þarf að halda. Fagráð áskilur sér rétt til að leggja fram athugasemdir sínar á síðari stigum, ef einhverjar verða.
4. 0912054 - Samkeppniseftirlitið, skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni, bréf dags. 16.12.09.
Lagt fram álit Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2009 Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni. Tilmæli til skipulagsnefnda sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar gerir engar athugasemdir við framkomið álit Samkeppnisstofnunar og mun hér eftir sem hingað til vinna eftir þeirra stefnu með jafnræðisreglur að leiðarljósi.
5. 0912069 - Varnarmálastofnun, aðalskipulag, bréf dags. 21.12.09.
Bréf frá Varnarmálastofnun Íslands þar sem færðar eru þakkir fyrir góð viðbrögð vegna tillagna um stækkun helgunarsvæðis í skipulagi umhverfis Ratsjárstöðina H1 á Miðnesheiði. Farið er fram á að virtar skuli þær takmarkanir sem staðsetning H1 hafi á mannvirkjagerð í framtíðarskipulagi sveitarfélagsins.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar gerir engar athugasemdir við framkomna tillögu að stækkun helgunarsvæðis umhverfis H1. Til að mæta óskum Varnarmálastofnunar um fyrirhugaðar takmarkanir á mannvirkjagerð í nágrenni H1 sér fagráð heldur enga meinbugi á slíku og samþykkir því að við afgreiðslu umsókna um byggingu mannvirkja á svæðinu skuli leita umsagnar Varnarmálastofnunar Íslands um tilhögun og gerð slíkra mannvirkja. Verði það að reglu nefndarinnar ef fyrirhuguð mannvirki eru í innan við 8 km fjarlægð frá stöðinni og ef þau rísa hærra en 40 m yfir sjávarmáli.
6. 0912060 - Aðalskipulag Sandgerðisbæjar, fundur 15.12.09.
Fundargerð stýrihóps um Aðalskipulag Sandgerðisbæjar. Fundur var haldinn 15. 12. 2009.
Lagt fram til kynningar.
7. 0912062 - Samv.nefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja, 07.12.09.
Fundargerð Samvinnunefndar um Svæðisskipulag Suðurnesja. Fundur var haldinn 7. desember, 2009.
Lagt fram til kynningar.
8. 0906005 - Deiliskipulag Krókskotstún og Landakotstún.
Drög að deilskipulagstillögu Krókskots- og Landakotstúns. Næsta skref í ferli skipulagstillögunnar.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar leggur til að haldinn verði opinn kynningarfundur með hagsmunaaðilum á svæðinu áður en farið verður í lokavinnslu deilskipulagsins.
9. 1001063 - Deiliskipulag Hafnarsvæðis, breyting á lóð nr. 4 við Hafnargötu
Stækkun lóðar nr. 4 við Hafnargötu á kostnað lóðar nr. 2 við sömu götu.
Þar sem um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hafnarsvæðisins er að ræða, felur skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar, byggingarfulltrúa að grenndarkynna málið fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu samkvæmt gr. 26 í Skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
10. 0804045 - Grunnskóli Sandgerðisbæjar. Stækkun og breytingar
Lagðar fram reyndarteikningar / lokateikningar af framkvæmdum við stækkun Grunnskólans í Sandgerði. Sótt er um breytingar frá fyrri samþykktum samkvæmt meðfylgjandi teikningum frá THG Arkitektum.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar samþykkir erindið með þeim fyrirvara að jákvæð umsögn eldvarnareftirlits liggi fyrir.
11. 0911056 - Biðskýli fyrir strætó, byggingarleyfi.
Erindið samþykkt samhljóða. Aðilum er bent á að útgáfa byggingarleyfis fer ekki fram nema að uppfylltum skilyrðum 13. greinar í byggingarreglugerð nr. 441/1998 þar sem Sveitarstjórn hefur staðfest samþykkt byggingarnefndar, byggingarleyfisgjöld og önnur gjöld hafa verið greidd eða um þau samið og byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína.
12. 0906007 - Brekkustígur 4 Umsókn um byggingaleyfi
Brekkustígur 4, stækkun húsnæðis. Grenndarkynningu er lokið.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar samþykkir erindið þar sem grenndarkynningu er lokið og engar athugasemdir bárust á athugasemdartíma. Allir aðilar sem hagsmuna hafa að gæta hafa lýst sig samþykkta breytingunum. Umsóknaraðila er bent á að útgáfa byggingarleyfis fer ekki fram nema að uppfylltum skilyrðum 13. greinar í byggingarreglugerð nr. 441/1998, þar sem Sveitarstjórn hefur staðfest samþykkt byggingarnefndar, byggingarleyfisgjöld og önnur gjöld hafa verið greidd eða um þau samið og byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína.
13. 1001062 - Hafnargata 4, umsókn um lóð
Hallgrímur Arthúrsson, fyrir hönd Verslunarfélagsins Ábótar, kt: 550799-2789, sækir um lóð nr. 4 við Hafnargötu.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar samþykkir erindið með eftirfarandi fyrirvara: Þar sem tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi svæðisins er í vinnslu verður ekki hægt að gera samning um lóðaleigu fyrr en grenndarkynning er afstaðin. Byggingarfulltrúa er heimilt að ganga frá lóðaleigusamningi við umsækjanda að grenndarkynningu lokinni.
14. 1001061 - Hafnargata 4, byggingarleyfi
Hallgrímur Arthúrsson, fyrir hönd Verslunarfélagsins Ábótar, kt: 550799-2789, sækir um leyfi til byggingar á tæplega 2000 m² húsnæði fyrir fiskvinnslu á lóð nr. 4 við Hafnargötu samkvæmt meðfylgjandi drögum.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar tekur mjög vel í erindið. Þar sem grenndarkynningu er ekki lokið á svæðinu er ekki unnt að samþykkja erindið að svo stöddu. Umsækjanda er bent á að skila inn fullnaðarteikningum af byggingunni til byggingarfulltrúa og getur gert það meðan grenndarkynningin er í vinnslu. Aðilum er bent á að útgáfa byggingarleyfis fer ekki fram nema að uppfylltum skilyrðum 13. greinar í byggingarreglugerð nr. 441/1998, þar sem Sveitarstjórn hefur staðfest samþykkt byggingarnefndar, byggingarleyfisgjöld og önnur gjöld hafa verið greidd eða um þau samið og byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína.
15. 1001064 - Garðvegur 5, byggingarleyfi
Idea ehf, kt: 601299-2249, sækir um leyfi til breytinga á byggingum sínum við Garðveg 5 samkvæmt meðfylgjandi teikningum frá Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar. Staðfesting eldvarnareftirlits liggur fyrir. Erindið samþykkt samhljóða. Aðilum er bent á að útgáfa byggingarleyfis fer ekki fram nema að uppfylltum skilyrðum 13. greinar í byggingarreglugerð nr. 441/1998 þar sem Sveitarstjórn hefur staðfest samþykkt byggingarnefndar, byggingarleyfisgjöld og önnur gjöld hafa verið greidd eða um þau samið og byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína.
16. 1001065 - Suðursvæði, umsókn um lóð
Theódór Blöndal Einarsson, kt: 080365-5519 til heimilis að Ásabraut 5, sækir um lóð undir frístunda- eða geymsluhúsnæði. Hann fyrirhugar að byggja á lóðinni húsnæði samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum.
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar leggur til að byggingarfulltrúi fundi með umsækjanda um nánari staðsetningu lóðar en leggur til að skoðað verði svæðið fyrir sunnan Strandgötu 26 í þessu sambandi.
17.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20.00
Carl Granz sign. Júlíus Einarsson sign. Ester Grétarsdóttir sign. Davíð Benónýsson sign. Óskar F. Jóhannsson sign. Birgir Haraldsson sign.
Til baka
|
|