18. janúar 2010
25. fundur
FJÖLSKYLDU- OG VELFERÐARNEFND SANDGERÐISBÆJAR, SV. GARÐS OG SV. VOGA 25. FUNDUR
25. fundur Fjölskyldu-og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga haldinn í Vörðunni mánudaginn 18.janúar 2010 kl. 16.15.
Mættir: Brynja Kristjánsdóttir Sv. Garður Ragnhildur H. Finnbogad. Sv. Vogar Jóhanna Lára Guðjónsd. Sv. Vogar Margrét Arna Eggertsd. Sandgerðisbær Sæunn Guðjónsdóttir Sandgerðisbær Hólmfríður Skarðhéðinsd. Sandgerðisbær formaður Ágústa Ásgeirsdóttir Sv. Garður Gyða Hjartardóttir Félagsmálastjóri Sigrún Pétursdóttir Félagsráðgjafi
Dagskrá: Opin dagskrá:
1. Bréf hefur borist frá Félags-og tryggingarmálaráðuneytinu um árlega hækkun fjárhagsaðstoðar sbr. gengi neysluverðsvísitölu. Hækkunin nemur 8,63%. Lagt er til að fjárhagsaðstoð hjá Sandgerðibæ, Sv. Garði og Sv. Vogum hækki samkvæmt því úr kr. 115.567- í kr. 125.540- sbr.10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Sandgerðisbæ, Sv. Garði og Sv. Vogum. Auk þess barst bréf frá bæjarráði Sandgerðisbæjar er varðar sama efni dags. 23.desember 2009. Málinu frestað fram á næsta fund.
2. Lagt fram til kynningar ákvörðun bæjarráðs Sandgerðisbæjar um að breyta reglum um umönnunarbætur í Sandgerðisbæ, þannig að 7 gr. reglna verður breytt úr því að foreldrar 12 mánaða barna eigi rétt á greiðslum í að foreldrar 18 mánaða barna eigi rétt á greiðslum séu börn á bið eftir leikskólavistun.
Lokuð dagskrá:
Barnaverndarmál (17) Fjárhagsaðstoð (6) Ferðaþjónusta fatlaðra/liðsveisla (1)
Sandgerðisbær (8) Sv. Garður (9) Sv. Vogar (7)
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.00.
Til baka
|
|