3. febrúar 2010
289. fundur
289. fundur Bæjarstjórnar, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, miðvikudaginn 3. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Ingþór Karlsson, Ólafur Þór Ólafsson, Guðrún Arthúrsdóttir, Haraldur Hinriksson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerðin er skráð á bls. 44 í fundargerðarbók Bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Forseti óskaði leyfis fundarins til að taka fyrir á fundinum ályktun bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar vegna málefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Var það heimilað samhljóða. (Sjá 1. mál í fundargerð). Hann óskaði einnig heimildar til að taka upp skipan fulltrúa bæjarstjórnar í nefnd um val á íþróttamanni ársins. Var það sömuleiðis heimilað samhljóða. (Sjá 23. mál í fundargerð)
Dagskrá:
1. 1002005 - Mótmæli bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar vegna árása ríkisins á HSS, 03.02.10.
Eftirfarandi bókun bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar var lögð fram:
Sandgerðisbær mótmælir harðlega aðför ríkisins að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja(HSS).
Um árabil hafa um 22 þúsund íbúar á Suðurnesjum þurft að búa við skert framlög ríkis á sviði heilbrigðismála og ítrekað þurft að taka á sig sparnaðarkröfur sem ekki eru samræmi við lágt framlag ríkisins á hvern íbúa á svæðinu.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar skorar á heilbrigðisráðherra að hefja án tafar viðræður við sveitarfélögin á svæðinu um framtíð heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum með það að markmiði að finna raunverulegar lausnir.
Rekstur HSS er best tryggður með samvinnu starfsfólks sem hefur mótað skýra stefnu og framtíðarsýn fyrir stofnunina, og sveitarstjórnarmanna á svæðinu, sem eru í daglegum tengslum við íbúa á svæðnu og hafa betri tilfinningu en fulltrúar ríkisins fyrir raunverulegu ástandi þar.
Heilbrigðisþjónusta á að vera hornsteinn góðs samfélags. Íbúar Sandgerðisbæjar sætta sig ekki við að á Suðurnesjum verði slök heilbrigðisþjónusta, en meðal sparnaðaraðgerða á síðasta ári var lokun heilsugæslustöðva í Sandgerðibæ, Sv. Garði og Sv. Vogum. Engin sambærilega samfélög á landinu eru án heilsugæslu.
Við sættum okkur ekki lengur við stefnuleysi og skert framlög til heilbrigðismála á Suðurnesjum sem hafa viðgengist í aldarfjórðung. Hægt er að tala um aðför ríkisins að grunnþjónustu Suðurnesjamanna.
Sandgerðisbær á lögum samkvæmt rétt á starfandi lækni og hjúkrunarkonu ásamt læknaritara til að þjóna um 1800 manna samfélagi. Rétt er að minna á að hér stendur fullbúinn heilsugæsla tilbúinn til notkunar sem byggð var á kostnað bæjarbúa en ríkið hefur þráast við að taka í notkun þrátt fyrir samstarf um byggingu stöðvarinnar.
Um leið og kyrkingarólin er hert að HSS er enn og aftur talað um að skoða málin, biðja starfsmenn að taka uppsögnum þegjandi og láta sem minnst í sér heyra um óánægju eða vanlíðan á meðan. Bent hefur verið á að hægt sé að fá heilbrigðisþjónustu í Reykjavík á lokunartímum hjá HSS svo sem um helgar og á sumrin. Þjónustan er þá þrátt fyrir allt í um 60 km fjarlægð frá Sandgerðisbæ. Slík framkoma og úrræðaleysi er ekki ásættanlegt sérstaklega í ljósi þess að samningar um sjúkraflutninga á svæðinu eru nú í uppnámi.
Endalausar útskýringar og áralangar vangaveltur, viðræður við þingmenn, ráðherra og ráðuneyti í næstum tuttugu ár hafa engu öðru skilað en að nauðsynleg þjónusta fyrir íbúa hefur dregist saman. Framtíðarsýn ríkisins fyrir stofnunina er engin þrátt fyrir góðan vilja starfsmanna HSS og sveitarstjórnarmanna á svæðinu.
Marg oft hefur verið bent á að reiknilíkan ráðuneytisins er meingallað. Vegna framkominna ábendinga frá sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum til margra ára hefur ráðuneytið fallist á og borið við að breyta sínum niðurstöðum seint og illa. Ráðherra er á réttri leið en höfundar (ráðuneytið) umrædds reiknilíkans hafa varið það með kjafti og klóm í mörg ár á kostnað íbúa á Suðurnesjum.
Nú standa þrjár heilsugæslustöðvar ónotaðar á Suðurnesjum. Þrjú sveitarfélög verða að treysta á heilsugæsluþjónustu í Reykjanesbæ en fram hefur komið að rekstur hennar er á brauðfótum og sjúkrahús okkar Suðurnesjamanna er að lognast út af vegna skilningsleysis stjórnvalda og fjárskorts.
Það hlýtur að vera hagsmunamál ríkisins að 22 þúsund íbúar Suðurnesjanna fái í það minnsta sambærilega þjónustu og aðrir þegnar þessa lands.
Staða heilbrigðismála á Suðurnesjum talar sínu máli.
Óskar Gunnarsson, sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson, sign. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, sign. Ingþór Karlsson, sign. Ólafur Þór Ólafsson, sign. Guðrún Arthúrsdóttir, sign. Haraldur Hinriksson, sign.
2. 1001121 - Ksd. Reynis, unglingaráð, umsókn um styrk 22.01.10.
Unglingaráð Knattspyrnudeildar Reynis óskar eftir styrk að upphæð kr. 50.000,- til að senda yfirþjálfara deildarinnar á þjálfaranámskeið.
Afgreiðsla: Bæjarstjórn hafnar erindinu.
3. 1001120 - Hafnasamband Íslands, minnisatriði dags. 26.01.10.
Minnisblað formanns stjórnar Hafnasambands Íslands um fund fulltrúa sambandsins með sjávarútvegsráðherra.
Afgreiðsla: Lagt fram. Málinu er vísað til hafnarráðs Sandgerðisbæjar.
4. 1001119 - Vinnumálastofnun Suðurnesja, bréf móttekið 28.01.10.
Átak Vinnumálstofnunar "Ungt fólk til athafna" er kynnt. Einnig fylgir yfirlit yfir fjölda atvinnulausra einstaklinga 24 ára og yngri á Suðurnesjum.
Afgreiðsla: Lagt fram. Málinu er vísað til atvinnuráðs Sandgerðisbæjar og stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
5. 1001118 - Styrkir vegna fasteignagjalda árið 2010, 29.01.10.
Bæjarstjóri fór yfir beiðni um styrk vegna fasteignagjalda sem fjallað var um á 494. fundi bæjarráðs, mál nr. 1001090. Bæjarstjóri hefur kannað málið með lögmanni bæjarins. Hann fjallaði einnig um samþykki bæjarstjórnar vegna niðurfellingar fasteignagjalda hjá heiðursborgara Sandgerðisbæjar og reglur í því sambandi.
Afgreiðsla: Bæjarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu í máli nr. 1001090. Reglusetningu vegna niðurfellingar fasteignagjalda hjá heiðursborgara Sandgerðisbæjar er vísað til bæjarráðs.
6. 1001117 - Samgöngu- og sveitarstj.ráðuneytið, bréf dags. 21.01.10.
Yfirlit yfir úthlutun og greiðslu framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna fasteignaskattsjöfnunar árið 2009. Endanlegt framlag ársins til Sandgerðisbæjar reyndist vera kr. 51.766.947,-.
Afgreiðsla: Lagt fram til upplýsingar.
7. 1001035 - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál, ekkert bókað. Málið er í vinnslu í bæjarráði.
8. 1001122 - SSS., tölvubréf dags. 25.01.10.
Samband Sveitarfélaga á Suðurnesjum óskar samþykkis sveitarfélaga á svæðinu til undirritunar vaxtarsamnings við iðnaðarráðuneytið. Samkvæmt samningnum verður framlag til Suðurnesja kr. 27.000.000,-
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarstjórn veitir sitt samþykki fyrir undirritun. Bæjarstjóra er falið að kynna samningana á heimasíðu Sandgerðisbæjar þegar þeir eru frágengnir.
9. 1001116 - Samanhópurinn, bréf dags. 25.01.10.
SAMAN-hópurinn óskar eftir styrk sveitarfélaga til forvarnarstarfs hópsins.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar. Bæjarstjórn samþykkir framlag að upphæð kr. 10.000,-.
10. 1001106 - HS Orka hf., bréf dags. 14.01.10.
Tilkynning um vitneskju og samþykki HS Orku hf. á viðskiptum Sandgerðisbæjar og Magma Energy Sweden A.B.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
11. 1001123 - VSÓ, svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024, drög 28.01.10.
Drög að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
12. 1001124 - VSÓ, aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024, 15. fundur, 19.01.10.
Fundargerð 15. fundar stýrihóps um Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 19. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
13. 1001071 - 25. fundur Fjölskyldu- og velferðanefnd, 18.01.10.
Fundargerð 25. fundar fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, SV. Garðs og Sv. Voga. Fundurinn fór fram mánudaginn 18. janúar 2010.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
14. 1001105 - 452. fundur Húsnæðis- skipulags- og byggingarráðs 20.01.10.
Fundargerð 452. fundar húsnæðis- skipulags og byggingarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 20. janúar 2010.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
15. 1001115 - 49. fundur Umhverfisráðs 26.01.10.
Fundargerð 49. fundar umhverfisráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 26. janúar 2010.
3. mál - Önnur mál: Bæjarstjórn bendir á að málið er í höndum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Upplýst er að þar er það í löglegum farvegi og búast má við aðgerðum innan tíðar.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
16. 0912004F - Bæjarráð - 491
Fundargerð 491. fundar bæjarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 22. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
16.1. 0912065 - Lex lögmannsstofa, tölvubréf 17.12.09.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
16.2. 0912055 - SSS., fjárhagsáætlun sameiginlegra rekinna stofnana fyrir árið 2010
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
16.3. 0912043 - Ferlir, bréf dags. 10.12.09.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
16.4. 0912064 - HS. Veitur hf., boðun hluthafafundar, 07.12.09.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
17. 0912006F - Bæjarráð - 492
Fundargerð 492. fundar bæjarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 29. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
17.1. 0912068 - KEF., brunavarnir á Keflavíkurflugvelli, bréf dags 16.12.09.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
17.2. 0912079 - Önnur mál B)
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
18. 1001002F - Bæjarráð - 493
Fundargerð 493. fundar bæjarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 12. janúar 2010.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
18.1. 1001029 - Kadeco, samstarfssamningur, dags. des. 2009.
Bæjarstjórn staðfestir samstarfssamning.
18.2. 1001030 - Athugasemdir við Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024, 05.01.10.
Bæjarstjórn tekur undir þakkir bæjarráðs.
19. 1001003F - Bæjarráð - 494
Fundargerð 494. fundar bæjarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 26. janúar 2010.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
19.1. 1001080 - Verkfr.stofa Suðurnesja, samn. um tæknivinnu, 19.01.10.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
19.2. 1001084 - Minnisblað frá byggingarfulltrúa, 18.01.10.
Bæjarstjórn hvetur embætti byggingarfulltrúa til að endurskoða og leiðrétta útboðsgögn til að fyrirbyggja misskilning sem upp hefur komið varðandi útboð á stækkun Miðhúsa.
19.3. 1001082 - Grunnskólinn í Sandgerði, beiðni um aukið fjármagn, 19.01.10.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
19.4. 1001093 - Klébergsskóla, dags. 22.12.09.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
19.5. 1001089 - F.C. Kajak, styrkbeiðni, 18.01.10.
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
19.6. 1001092 - Dagmar Þráinsdóttir, styrkbeiðni 11.01.10
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
19.7. 1001067 - Keilir, stofnframlag Tækni- og vísindabókasafn, dags. 12.01.10.
Forstöðumaður Bæjarbóksafns Sandgerðisbæjar hefur lagt fram svar við erindi bæjarráðs. Samkvæmt því er lagt til að málinu verði vísað til gerðar næstu fjárhagsáætlunar. Bæjarstjórn samþykkir tillögu forstöðumanns Bæjarbókasafnsins.
19.8. 1001088 - Kalka, urðunarstaður á Stafnesi, 20.01.10.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar hefur móttekið erindi frá stjórn Kölku dags. 20. janúar. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar vill af gefnu tilefni taka fram að unnið er að endurskoðun á aðalskipulagi bæjarfélagsins. Sú ákvörðun byggir meðal annars á breytingu á lögum um fyrrum varnarsvæði en umræddir urðunarstaðir voru á fyrrum varnarsvæðum. Fyrir breytingar á lögunum var megin forsenda fyrir staðsetningu á fyrrum varnarsvæðum sú ófrávíkjanlega regla að ekki mætti flytja sorp til urðunar út fyrir varnarsvæðið. Nú eru breyttir tímar og Sandgerðisbær fer með skipulagsvald á fyrrgreindum svæðum. Fyrrum landeigendur, fagráð og umhverfisstofnun hafa lagst gegn urðun á umræddum stað. Stýrihópur á vegum Sandgerðisbæjar hefur ásamt ráðgjöfum fallist á fram komnar ábendingar. Bæjarstjórn mun á næstu vikum kanna hug íbúa bæjarfélagsins til fyrrgreindra tillagna/ábendinga. Bæjarstjórn áréttar og ítrekar að umræddir sorpurðunarstaðir voru undir skiplagsvaldi utanríkisráðuneytisins þar til í janúar 2008.
19.9. 1001109 - Önnur mál B)
Afgreiðsla bæjarráðs er staðfest.
20. 0912002F - Bæjarstjórn - 287
Fundargerð 287. fundar bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 16. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram.
21. 1001001F - Bæjarstjórn - 288
Fundargerð 288. fundar bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 20. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram.
22. 1001072 - 389. fundur Kölku, 14.01.10.
Fundargerð 389. fundar stjórnar sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 14. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
23. 1002007 - Skipan nefndar um kjör Íþróttamanns Sandgerðisbæjar 2009
Bæjarstjórn skipar fulltrúa sína í nefnd um kjör Íþróttamanns Sandgerðisbæjar 2010.
Eftirtaldir aðilar voru skipaðir í nefndina: Óskar Gunnarsson, formaður. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir. Haraldur Hinriksson.
24.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00
Óskar Gunnarsson sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson sign. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir sign. Ingþór Karlsson sign. Ólafur Þór Ólafsson sign. Guðrún Arthúsdóttir sign. Haraldur Hinriksson sign. Guðjón Þ. Kristjánsson sign.
Til baka
|
|