20. janúar 2010
288. fundur
288. fundur Bæjarstjórnar, haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, miðvikudaginn 20. janúar 2010 og hófst hann kl. 17.30
Fundinn sátu: Óskar Gunnarsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Ingþór Karlsson, Ólafur Þór Ólafsson, Guðrún Arthúrsdóttir, Haraldur Hinriksson,
Fundargerð ritaði: Guðjón Þ. Kristjánsson.,
Fundargerðin var skráð á bls. 43 í fundargerðarbók Bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Dagskrá:
1. 0912028 - Fjárhagsáætlun 2010, síðari umræða
Í upphafi fundar óskaði forseti Óskar Gunnarsson heimildar fundarins til að bera upp eftirfarandi tillögu til fjárhagsáætlunar og var það heimilað samhljóða:
Á fundi bæjarstjórnar í dag var samþykkt tillaga bæjarfulltrúa Sandgerðisbæjar að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandndi hörmunga á Haítí.
Upphæðin er kr. 175.000,- og verður Rauða krossi Íslands falinn ráðstöfun fjársins.
Fjármagnið komi af liðnum 2153, Auglýsingar undir liðnum Kynningarmál í fjárhagsáætlun.
Óskar Gunnarsson, sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson, sign. Haraldur Hinriksson, sign. Guðrún Arthúrsdóttir, sign. Ólafur Þór Ólafsson, sign. Ingþór Karlssson, sign. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, sign.
Afgreiðsla: Tillagan samþykkt samhljóða.
Önnur umræða um "Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010." Fyrri umræða fór fram á 287. á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 16. desember 2009 (sjá 8. mál).
Forseti gaf bæjarstjóra orðið. Bæjarstjóri flutti stefnuræðu sína.
Stefnuræða með fjárhagsáætlun 2010. Stefnuræða bæjarstjóra við síðari umræðu.
Inngangur. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 var lögð fram til fyrri umræðu 16.12.2009 og er til endanlegrar afgreiðslu við síðari umræðu 20.01.2010. Þriggja ára áætlun var lögð fram á síðasta fundi bæjarráðs eða 12.01.2010 en hún er hér til afgreiðslu ásamt áætlunum fyrir allar stofnanir bæjarfélagsins. Meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar lögðu til á fundi sínum í desember að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 verði vísað ásamt þriggja ára áætlun sem lögð var fram í bæjarráði til síðari umræðu bæjarstjórnar. Rétt er að taka hér fram að bæjarstjórn vísaði þriggja ára áætlunni til fullnaðarafgreiðslu til fyrri umræðu í bæjarráði. Þriggja ára áætlunin fær því tvær umræður af hálfu bæjarfulltrúa eins og lög gera ráð fyrir. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka góða umræðu og framkomnar tillögur á fundum bæjarstjórnar sem og á fundum í bæjarráði er varðar áætlun ársins. Bæjarfulltrúar hafa í fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 ásamt áætlun 2010 og í markmiðum sínum í þriggja ára áætlun fyrir árin 2011 - 2013 sameinast um leiðir, enda er vilji til að þjóna bæjarbúum sameiginlegur þó deila megi á stundum um einstök mál. Ég vil hér ítreka þakkir til deildarstjóra bæjarfélagsins og þá sér í lagi aðalbókara Sandgerðisbæjar sem hefur ásamt bæjarstjóra og bæjarráði lagt grunninn að fjárhagsramma Sandgerðisbæjar næstu árin. Starfið hefur verið unnið undir vökulu eftirliti endurskoðenda bæjarfélagsins sem sáu um endanlega framsetningu á áætlunum bæjarfélagsins. Þar ræður ríkjum Oddur Gunnar Jónsson. Gerð var grein fyrir meginforsendum fjárhagsáætlunarinnar við fyrri umræðu og verður sú yfirferð ekki endurtekin hér. Hins vegar verður hér farið yfir megin markmið ársins og þau atriði önnur sem vert er að leggja áherslu á á árinu 2010 og væntingar til næstu þriggja ára. Sú venja hefur skapast við fjárhagsáætlunargerð að á fundum bæjarráðs, milli fyrri og síðari umræðu í bæjarstjórn nú, 22.12.2009, 29.12.2009 og þann 12.01.2010, hafa verið ræddar tillögur að breytingum sem bæjarfulltrúar og eða bæjarstjóri vilja koma á framfæri eða skoða nánar á milli umræðna. Bæjarráð tók sér því góðan tíma til að ræða áætlun ársins og breytingar til að byggja góðan grunn fyrir næstu þrjú fjárhagsár. Við fyrri umræðu kom fram ábending frá bæjarstjórn um að gert væri ráð fyrir samningum við Fasteign hf. er varðar framkvæmdir við Grunnskólann á árinu 2008 og 2009. Bæjarstjórn taldi eðlilegt að forsendur og uppgjör á slíkum samning væri í áætlun fyrir árið 2010. Bæjarstjórn fól bæjarráði að ræða umrædda tilhögun í bæjarráði og þar var sammælst um að framboðin myndu gera sérstaka bókun um þá ætlan að ganga frá samningi við Fasteign hf. og tryggja þar með sterka stöðu Velferðarsjóðs á erfiðum tímum í efnahagslífi þjóðarinnar. Bæjarstjórn hefur því með framsetningu sinni á áætlun fyrir árið 2010 lagt áherslu á málefni sem samkomulag og eining er um á milli framboða.
En hver er staðan um áramót – Hvað var unnið á árinu 2009?
Áður en við förum yfir áherslur ársins 2010 er bæði rétt og skylt að kanna farinn veg og líta á þær áherslur sem settir voru fram 2009 og hvaða markmiðum var náð á árinu sem nú er að baki. Á árinu voru neðangreind verkefni sett í forgang, þjónustan tryggð og verkefni unnin í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarstjórnar 2009 . 1. Rekstur Skýjaborgar í húsnæði bæjarfélagsins að Víkurbraut 11 (Púlsinum) fyrir ungt fólk í grunnskóla bæjarfélagsins var tryggður. 2. Bæjarfélagið sá um rekstur á Vallarhúsi Reynis á árinu. 3. Skýlið, Tjarnargötu 4, var rekið sem athvarf fyrir unglinga. 4. Ætlunin var að taka upp samstarf við Fasteign ehf um byggingu á fjölnota íþróttahúsnæði með gerfigrasvelli í samræmi við framkomnar hugmyndir. Þessu máli var slegið á frest. 5. Framhald varð á samstarfi við Fasteign hf um endurbætur og stækkun Grunnskólans og er þeim framkvæmdum nær lokið. Gert er ráð fyrir uppgjöri á þeirri framkvæmd í áætlun ársins. 6. Stækkun Vallarhúsa í 18 holu golfvöll var framhaldið á árinu. 7. Unnið var við framkvæmdir í gatnagerð. Hlíðargata og lagfæringar í Hólahverfi og við Sjávarbraut. 8. Unnið var að miklum lagfæringum á hafnarsvæðinu. 9. Unnið var að lagfæringum á húsnæðinu að Garðvegi 3. 10. Gengið var frá kaupum - aðkomu bæjarfélagsins að nýju húsnæði Sigurvonar. 11. Lokið var við að innrétta löggæslustöð fyrir bæjarfélagið. 12. Lokið var við nýja uppbyggingu á svæði sunnan við íþróttasvæði Reynis. Hér er átt við lagfæringu á vallarsvæði, uppsetningu á girðingum og fyrsta áfanga í stúkubyggingu. 13. Hafin var vinna við markaðsátak í uppbyggingu á fyrrum varnarsvæðum. 14. Góðri þjónustu í Miðhúsum við eldri bæjarbúa var viðhaldið. 15. Greiddur var niður matur hjá nemendum leik- og grunnskólans. 16. Lokið var við lagfæringar á lóð leikskólans og grunnskólans. 17. Lokið var við byggingu þjónustuhúss á tjaldsvæði bæjarfélagsins. 18. Samið var um leigu á húsnæði undir Heilsugæslu í Vörðunni en húsnæðið verður laust 1.03.2010. 19. Hafist var handa við gerð göngu- hjóla- og reiðstíga á árinu 2009 og er þeim lokið við Lækjarmótahverfi og að mestu í Hólahverfi. 20. 1. áfanga að framtíðarbyggingu leikskóla var lokið. 21. Lögð var áhersla á umhverfismál á árinu 2009 með m.a. ráðningu starfsmanns á því sviði. 22. Unnið var að „yndisgróðri“, gróðurreyt við framtíðarútivistarsvæði. 23. Uppsetning á hljóðkerfi fyrir íþróttamiðstöð og sundlaug. 24. Lokið var byggingu anddyris fyrir íþróttamiðstöð. Miklu framkvæmdaári er nú lokið og var framkvæmt fyrir um einn milljarð króna.
Tekjuáætlun.
Við endanlega áætlun skatttekna er gert ráð fyrir hækkun útsvarstekna og nær óbreyttum tekjum í fasteignaskatti og óbreyttu framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Á árunum þar á eftir er gert ráð fyrir að tekjur muni hækka og verða í takt við tekjur eins og þær voru á árinu fyrir bankahrun.
Gjaldaáætlun.
Launakostnaður er sem fyrr langstærsti einstaki útgjaldaliður rekstrar, þá vöru- og þjónustukaup, ýmsar millifærslur og aðrar tilfærslur og loks fjármagnskostnaður. Verðlagsforsendur gjaldamegin frumvarpsins eru þær helstar að laun eru reiknuð samkvæmt samningum. Húsaleiga tekur breytingum frá fyrsta mars eins og bæjarráð hefur lagt til við bæjarstjórn og hefur verið ákveðið og er í samræmi við hækkun - breytingar á vísitölu.
Gjaldskrár.
Gjaldskrár voru lagðar fram til skoðunar og samþykkt, að ekki yrðu gerðar breytingar á gjaldskrám. Gjald fyrir hráefniskaup á mat fyrir stofnanir bæjarfélagsins mun taka breytingum og fylgja verðlagsþróun, raunkostnaði eins og verið hefur.
Áherslumál 2009.
Rétt er að skoða samanburð á rekstri Sandgerðisbæjar og annarra sambærilegra sveitarfélaga og vísast hér til Árbókar sveitarfélaga til viðmiðunar. Nauðsynlegt er fyrir bæjarfulltrúa að skoða slíkar tölur til að fá yfirsýn yfir rekstur málaflokka á vegum bæjarfélagsins. Megin markmiðið er hið sama og áður að jafna útgjaldaliði og ná fram meira fé til fjárfestinga og eða til að greiða hraðar niður lán. Rammi ársins er miðaður við neðanritað, sjá gögn frá fyrri umræðu. Laun og launatengd gjöld eru áætluð um 56% Annar rekstrarkostnaður 46% Afskriftir eru um 9% Veltufé frá rekstri 1% Rekstrarniðurstaðan er neikvæð um 12% en veltufé frá rekstri er 6.8%
Gert er ráð fyrir að útgjaldaramminn verði því sem næst óbreyttur næstu árin að teknu tilliti til hækkunar á launum og aukins reksturs. Ljóst er hinsvegar að bæjarstjórn leggur þunga áherslu á að rekstrarniðurstaðan verði jákvæð á næstu árum en einhugur ríkir í bæjarstjórn um þá ákvörðun að ekki komi til hækkunar á þjónustugjöldum á meðan verið er að ná áttum í efnahag þjóðarinnar. Bæjarfélagið nýtur þess á erfiðum tímum að eiga Velferðarsjóð til afnota þegar illa árar.
Áherslur og ábendingar.
• Skýrar reglur eru um framkvæmd fjárhagsáætlunar. Forstöðumönnum deilda er óheimilt að skuldbinda sveitarfélagið til útgjalda umfram fjárhagsáætlun nema fyrir liggi samþykki bæjarráðs til útgjaldaaukninga. • Sveitarstjórnarlög mæla einnig fyrir um framkvæmd fjárhagsáætlunar. • Lögð er áhersla á að deildarstjórum ber að tilkynna breytingar á rekstri á fundum deildarstjóra svo hægt sé að bregðast við og fara með málið fyrir bæjarráð stefni í að fjárhagsáætlun standist ekki. • Sala eigna í félagsíbúðakerfinu mun halda áfram á árinu.
Sjóðstreymi.
Í áætlun næstu ára kemur fram að handbært fé frá rekstri mun taka breytingum á milli ára en vonast var til að jafnvægi kæmist á þessar sveiflur á næstu þremur árum. Veltufé frá rekstri er áætlað um 6,8 %.
Skuldastaða bæjarfélagsins.
Skuldir Sandgerðisbæjar hafa aukist frá árinu 2006 og munar þar um hækkun á lifeyrisskuldbindingum og gengisbreytingum. Ekki er gert ráð fyrir lántökum á árinu 2010 við fyrri umræðu í bæjarstjórn. Bæjarfulltrúar hafa hinsvegar sammælst um að auka lántökurnar um allt að 100 milljónir á ári í þriggja ára áætlun bæjarfélagsins til framkvæmda. Bæjarstjórn leggur áherslu á að Sandgerðisbær hefur umtalsvert fjármagn í velferðarsjóði um hver áramót en gengið hefur verið á upprunalegan höfuðstól sjóðsins m.a. með greiðslu fjármagnstekjuskatts – niðurgreiðslu lána og stuðningi við framkvæmdir á leikskóla, grunnskóla og í gatnagerð.
Með samþykki sínu hér á eftir samþykkir bæjarstjórn að styrkja Velferðarsjóð þannig að hann verði um 1.855.000.000.- um næstu áramót. Hann mun síðan vaxa og vísast hér í áætlun til þriggja ára.
Skuldir bæjarsjóðs þ.e. tölur úr A-hluta eru kr. 625.000.- á íbúa en voru 656.000.- á íbúa á árinu 2009. Sjá lykiltölur á bls. 5 fyrir A-hluta og B-hluta. Skuldbindingar er nú um 152.000.- kr. á íbúa.
Skuldbindingar bæjarsjóðs.
Lífeyrisskuldbindingar a-hluta og b-hluta voru 324.4 mkr. en í áætlun ársins er gert ráð fyrir að þær verði 340.8 mkr. Leigugreiðslur til Fasteignar á árinu 2009 voru 149 mkr. en verða 180 mkr. á árinu 2010. Leigugreiðslur munu aukast á milli ára og kemur þar til stækkun sundlaugar, þreksalar og vegna viðbyggingar grunnskólans. Þrátt fyrir sjáanlega hækkun hefur Fasteign ákveðið að lækka leigugreiðslur um 28.3% frá árinu á undan.
Um er að ræða félagsform sem einskorðar sig við að byggja og endurleigja húsnæði fyrir eigendur sína sem eru bankastofnanir, ríki og sveitarfélög. Vert er hér að hafa í huga að bæjarfélagið seldi frá sér eignir til hlutafélags sem bæjarsjóður fær af arð ár hvert. Bæjarfélagið greiddi niður erlendar og óhagstæðar skuldir fyrir þá upphæð sem fékkst fyrir eignirnar á sínum tíma. Taka verður tillit til þessara staðreynda þegar rætt er um leigugreiðslur, vaxtakostnað og greiðslubyrði lána.
Lokaorð.
Miklum framkvæmdum er nú lokið í lagfæringum á eldri götum og lagfæringum á Strandgötu í samstarfi við Vegagerð ríkisins. Umtalsverðum framkvæmdum er nær lokið í tveimur hverfum þ.e. í Hólahverfi og í Lækjamótum. Bæjarstjórn ákvað með sínum framkvæmdum á árunum 2008 – 2009 að tryggja hraða uppbyggingu en draga síðan verulega úr framkvæmdum á árunum þar á eftir. Megin markmið er ljóst. Sandgerðisbær verður innan fárra ára í fremstu röð bæjarfélaga er varðar þjónustu, lág þjónustugjöld og fagurt umhverfi.
Niðurlag. ( sjá einnig fyrri umræðu.)
Horfur fyrir næsta ár eru eins góðar og hægt er að reikna með í því ölduróti sem bæjarfélög og landið allt sigldi inn í á síðasta ári. Allur sá ófögnuður mun lenda á skattgreiðendum. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar harmar það andvaraleysi og úrræðaleysi sem eftirlitsstofnanir landsins hafa sýnt enda virðist lagaumhverfið og þar með allar varnir í efnahagsmálum þjóðarinnar ekki hafa verið í takt við útþenslu íslenska bankakerfisins. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar er hinsvegar staðráðin í að tryggja velferð íbúa og grunnþjónustu samfélagsins eftir því sem hægt er. Því er lögð áhersla á að halda gjaldskrám sem mest óbreyttum á næstu árum. Bæjarstjórn bendir hér á verkefni Sandgerðisbæjar á árinu 2010. Hér er vísað í niðurlag frá fyrri umræðu í bæjarstjórn. Á árinu er gert ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum eða fyrir um 140,7 mkr. Helstu framkvæmdir eru; 1. Ýmsar eignabreytingar 5.000.000.- 2. Búnaðarkaup fyrir stofnanir 4.000.000.- 3. Eignarhlutur í stofnunum SSS 10.000.000.- 4. Byggðarvegur hringtorg 15.000.000.- 5. Grunnskóli lóð 5.000.000.- 6. Grunnskóli húsgögn og búnaður 15.000.000.- 7. Íþróttasvæði – bílastæði 5.000.000.- 8. Íþróttasvæði 6.000.000.- 9. Leikskólalóð fyrir 1. áfanga 1.000.000.- 10. Íbúðir fatlaðra 1.000.000.- 11. Opin svæði – náma 3.000.000.- 12. Opin svæði – merki 2.000.000.- 13. Sjóvarnir 8.000.000.- 14. Leikvöllur við Lækjamót 3.500.000.- 15. Leikvöllur við Tjarnargötu 2.000.000.- 16. Stækkun Miðhúsa 34.500.000.- 17. Styrkur frá ríkinu vegna Miðhúsa ( 8.000.000.-) 18. Girðingar með stígum 1.500.000.- 19. Sjávarbraut – lýsing 3.000.000.- 20. Slökkvistöð endurbætur 3.200.000.- 21. Slökkvistöð lóð 1.000.000.- 22. Göngustígar 10.000.000.- 23. Hafnarsjóður 1.000.000.- 24. Vatnsveita 1.000.000.- 25. Fráveita 1.000.000.-
Bæjarstjórn er einhuga í að taka eitt af neðan nefndum málum inn í breytingar á áætlun í apríl ef fyrirgreiðsla fæst á fjárlögum næsta árs eða að fengin verða framlög frá þeim aðilum sem vitnað er í hér að neðan. Hinsvegar er ljóst að ekki eru miklar líkur á að svo verði.
26. Strandgata, 3. áfangi ef fjármagn kemur frá Vegagerðinni 45.000.000.- 27. Garðvegur 3, þegar ákvörðun um þjónustusamning liggur fyrir 45.000.000.- 28. Bygging þjónustuíbúða fyrir fatlaða fáist rekstrarstyrkur og rekstrarleyfi 45.000.000.-
Velferðarsjóður Sandgerðisbæjar hefur verið nýttur í samræmi við ákvarðanir bæjarstjórnar. Ljóst er að með framkominni áætlun er lögð rík á hersla á að sjóðurinn verði efldur til átaka á komandi kjörtímabili.
Rétt er í lokin að leggja áherslu á að bankahrunið hefur haft mikil áhrif á þjóðfélagið og þrátt fyrir styrkar stoðir hefur bæjarfélagið ekki farið varhluta af breyttum aðstæðum. Gæta þarf fyllsta aðhalds í rekstri bæjarins næstu mánuði en allir bæjarfulltrúar í bæjarstjórninni hafa komið að fjárhagsáætlunargerðinni og vonandi tekst bæjarstjórn að ná ásættanlegri lendingu hvað varðar rekstur bæjarins á næstu árum en það er ljóst að hann verður þungur. Þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður í þjóðfélaginu er brýnt og mikilvægt að hlúa sem best að okkar samfélagi og það gerum við e.t.v. best með því að standa saman í að vernda þær stofnannir sem hlúa að okkar börnum og unglingum í leik og starfi. Með þessum orðum leggja bæjarfulltrúar og bæjarstjóri til við forseta bæjarstjórnar að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 og þriggja ára áætlun samstæðunnar verði borin upp til samþykktar.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, 30.12.2009.
Forseti gaf orðið laust um Fjárhagsáætlun 2010.
Ólafur Þór Ólafsson þakkaði bæjarstjóra stefnuræðu hans. Hann lagði fram eftirfarandi bókun fulltrúa S- lista:
Bókun vegna fjárhagsáætlunar 2010
S-listi Samfylkingar og óháðra greiðir atkvæði með fjárhagsáæltun ársins 2010, enda hafa fulltrúar listans tekið þátt í gerð hennar í samræmi við samkomulag meiri- og minnihluta þess efnis. Í þeirri ágjöf sem verið hefur yfir íslenskan efnahag síðustu misseri hefur miklu skipt að bæjarfulltrúar í Sandgerði hafa unnið saman að þeim krefjandi verkefnum sem þurft hefur að sinna. Í slíku samstarfi er það aldrei svo að allir aðilar nái sínum ítrustu kröfum fram, niðurstaðan er alltaf málamiðlun. Eins má ekki gleyma því góða starfi sem embættismenn og annað starfsfólk Sandgerðibæjar hefur unnið við undirbúning, vinnu og framkvæmd fjárhagsáæltunar. Það framlag er mjög mikilvægt nú þegar þrengir að. Um leið og fjárhagsáætlun ársins 2010 er samþykkt telja bæjarfulltrúar S-listans að rétt sé að eftirfarandi atriði komi fram. Í bréfi frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga til Sandgerðisbæjar dags. 03.11.2009 er varað við verulegri skuldasöfnun sveitarfélagsins. Þessi varnaðarorð nefndarinnar koma í framhaldi af frumathugun hennar á ársreikningi Sandgerðisbæjar fyrir árið 2008. Slíkt erindi frá Eftirlitsnefndinni kemur ekki á óvart, enda samhljómur í því með þeirri bókun sem bæjarfulltrúar S-listans gerðu við samþykkt reikinga ársins 2008. Bréfið er áminning um það að í allri fjármálastjórnun og rekstri Sandgerðisbæjar þarf að gæta ráðdeildar og aðhalds. Í fjárhagsáæltun ársins 2010 er gert ráð fyrir að nýbygging Grunnskólans verði seld Eignarhaldsfélaginu Fasteign, en sú framkvæmd hefur verið fjármögnuð af Sandgerðibæ annars vegar með lántöku og hins vegar með framlagi úr Velferðarsjóði. Eignin verður síðan endurleigð næstu 30 árin og gengið út frá því að andvirði sölunnar verði nýtt til að hækka höfuðstól Velferðarsjóðsins. Það er þó enginn trygging til staðar fyrir því að núverandi forsendur haldist til frambúðar og því er mikilvægt að ávallt sé leitað hagkvæmustu leiðanna í rekstri þeirra mannvirkja sem eru á vegum Sandgerðisbæjar. Í þessu sambandi er rétt að benda á eftirfarandi atriði: a) Leigusamningar við Eignarhaldsfélagið Fasteign eru að 55% bundnir við gengi evru gagnvart íslenskru krónunni. Það þýðir að greiðslubyrði bæjarsjóðs vegna leiguskuldbindinga vex eða dvínar eftir stöðu íslensku krónunnar. Síðustu misseri hefur veiking krónunnar haft mjög íþyngjandi áhrif á rekstur bæjarsjóðs í formi hækkandi leigugreiðslna. Því miður eru enn blikur á lofti varðandi stöðu íslensku krónunnar og því erfitt að spá fyrir um það hver þróun gengismála verður. b) Stjórn Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hefur ákveðið að veita leigutökum rúmlega 28% afslátt á leigu. Þessi ákvörðun er tímabundinn og það má velta því fyrir sér hvort að félagið geti staðið undir því að bjóða slík kjör til lengri tíma. c) Velferðarsjóður Sandgerðisbæjar hefur borið mjög háa innlánsvexti til þessa. Þau kjör þurfa að haldast áfram til að forsendur hagkvæmis á sölu eignar til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar haldist. d) Í þeim ólgusjó fjármálamarkaðir hafa farið í gegnum síðustu tvö árin eru það gild rök að benda á að eign í fasteign er öruggari en peningaleg eign sem getur tekið miklum breytingum á stuttum tíma. Mismunandi pólitísk afstaða gangvart leigu leið opinberra fasteigna grundvallast einmitt á þessu atriði.
Ólafur Þór Ólafsson, sign. Guðrún Arthúrsdóttir, sign.
Haraldur Hinriksson tók til máls. Hann þakkaði bæjarstjóra stefnuræðu hans og þakkaði jafnframt samstarf við gerð fjárhagsáætlunar. Hann ítrekaði fyrirvara B-listans við sölu eignarhluta Sandgerðisbæjar í Grunnskólanum í Sandgerði til Fasteignar hf. og lagði fram eftirfarandi bókun B-lista:
Bókun B-lista: Vegna fyrirhugaðrar sölu á eignarhluta Sandgerðisbæjar í Grunnskóla Sandgerðis til eignarhaldsfélagsins Fasteignar h.f.
Þau rök sem hafa verið færð fyrir því að ódýrara sé að sveitarfélagið leigi skólahúsnæði af fasteigafélagi, í stað þess að byggja eigið húsnæði, eru fyrst og fremst þau, að fasteignafélagið geti byggt ódýrar en sveitarfélagið og að fasteignarfélagið geti fengið betri vaxtakjör. Nú þarf ekki að fjölyrða um byggingarkostnað, húsið er þegar byggt. Og hvað varðar vaxtakjör, þá sá Sandgerðisbær um að fjármagna framkvæmdina, þar sem Fasteign hafði ekki aðgang að lánsfé. Reynslan undanfarin ár af því að leigja, hefur kennt okkur að það er miklu ótryggara, en að eiga húsnæði skuldlaust. Því er undirritaður mótfallinn sölu á eignarhluta. Þar sem nú eru aðeins fjórir mánuðir til sveitarstjórnarkosninga, er tilvalið að koma í framkvæmd hugmyndum um íbúalýðræði og láta kjósa um þetta mál samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor.
Með öðrum orðum, að leyfa eigendunum sjálfum að taka endanlega ákvörðun í þessu mikilvæga máli.
Haraldur Hinriksson, sign.
Forseti bar "Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010" upp til atkvæðagreiðslu.
Afgreiðsla: "Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar 2010" samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.
Forseti bar "Þriggja ára áætlun Sandgerðisbæjar 2010" upp til atkvæðagreiðslu.
Afgreiðsla: "Þriggja ára áætlun Sandgerðisbæjar 2010" samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.
2. 1001032 - 23. fundur Fjölskyldu- og velferðarnefnd, 14.12.09.
Fundargerð 23. fundar fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga. Fundurinn fór fram mánudaginn 14. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
3. 1001033 - 24. fundur Fjölskyldu- og velferðarnefnd 21.12.09.
Fundargerð 24. fundar fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga. Fundurinn fór fram mánudaginn 21. desember 2009.
Fram kom athugasemd við fundargerðina.
Afgreiðsla: Afgreiðslu frestað.
4. 1001038 - 243. fundur fræðsluráðs, 07.01.10.
Fundargerð 243. fundar fræðsluráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 7. janúar 2010.
1. mál: Bæjarstjórn staðfestir ráðningu eftirtalina aðila til afleysingar: Til afleysingar í kennslu: Sif Karlsdóttir og Sigurður Hilmar Guðjónsson. Til afleysingar almenns starfsmanns: Kristín Ársælsdóttir. Bæjarstjórn býður þessa aðila velkomna til starfa.
3. mál C- liður: Bæjarstjórn óskar eftir að fá kynningu á niðurstöðum málsins.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
5. 1001007 - 451. fundur Húsnæðis- skipulags- og byggingarráðs, 16.12.09.
Fundargerð 451. fundar húsnæðis- skipulags- og byggingarráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 16. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
6. 1001006 - 52. fundur Íþróttaráðs, 17.12.09.
Fundargerð 52. fundar íþróttaráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 17. desember 2009.
1. mál: Staðfestingu skipuritsins frestað.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
7. 1001004 - 47. fundur Umhverfisráðs, 09.12.09.
Fundargerð 47. fundar umhverfisráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 9. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
8. 1001005 - 48. fundur Umhverfisráðs, 15.12.09.
Fundargerð 48. fundar umhverfisráðs Sandgerðisbæjar. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 15. desember 2009.
Afgreiðsla: Fundargerð staðfest.
9. 1001054 - Bioice, fundur 15.12.09.
Fundargerð verkefnisstjórnar verkefnisins Botndýr á Íslandsmiðum. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 15. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
10. 1001055 - Deildarstjórafundur, 11.01.10.
Fundargerð deildarstjórafundar hjá Sandgerðisbæ. 1. fundur 2010. Fundurinn fór fram mánudaginn 11. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
11. 1001053 - Hluthafafundur í EFF, 12.01.10.
Fundargerð hluthafafundar í Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 12. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
12. 0912046 - 387. fundur Kölku, 03.12.09.
Fundargerð 387. fundar stjórnar Sorpeyðingastöðvar Suðurnesja. Fundurinn fór fram fimmtudaginn 3. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
13. 0912045 - 388. fundur Kölku, 08.12.09.
Fundargerð 388. fundar stjórnar Sorpeyðingastöðvar Suðurnesja. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 8. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
14. 1001052 - Landslag löfræðistofa, minnispunktar vegna fundar við forstjóra HS Orku, 14.01.10.
Minnispunktar frá fundi bæjarstjóra Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga með forstjóra HS. Orku vegna sölu á landi og jarðhitaréttindum. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 6. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
15. 1001002 - 770. fundur SÍS., 11.12.09.
Fundargerð 770. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn fór fram föstudaginn 11. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
16. 0912047 - 604. fundur SSS., 04.12.09.
Fundargerð 604. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram föstudaginn 14. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
17. 0912052 - 605. fundur SSS., 14.12.09.
Fundargerð 605. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram föstudaginn 4. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
18. 1001051 - 606. fundur SSS., 08.01.10.
Fundargerð 606. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram föstudaginn 8. janúar 2010.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
19. 0912051 - 67. fundur Þjónustuhópur aldraðra, 09.12.09.
Fundargerð 67. fundar þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram miðvikudaginn 9. desember 2009.
Afgreiðsla: Lagt fram til kynningar.
20.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
Óskar Gunnarsson sign. Sigurður Valur Ásbjarnarson sign. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir sign. Ingþór Karlsson sign. Ólafur Þór Ólafsson sign. Guðrún Arthúrsdóttir sgin. Haraldur Hinriksson sign. Guðjón Þ. Kristjánsson sign.
Til baka
|
|