TILLAGA AÐ NIÐURFELLINGU SVÆÐISSKIPULAGS
Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur 1995-2015
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja auglýsir hér með tillögu að niðurfellingu Svæðisskipulags – Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur 1995 – 2015,
skv.13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Tillagan verður til sýnis á Bæjarskrifstofunum Grindavíkurbæ Víkurbraut 62, Sandgerðisbæ Vörðunni Miðnestorgi 3, Reykjanesbæ Tjarnargötu 12, Sveitarfélaginu Garði Sunnubraut 4 og Sveitarfélaginu
Vogum Iðndal 2. Tillagan er einnig til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 3. júní 2009 til og með 1. júlí 2009.
Tillöguna má jafnframt skoða á heimasíðum sveitarfélaganna,
www.sandgerdi.is, www.reykjanesbaer.is, www.svgardur.is, og á heimasíðum Keflavíkurflugvallar, www.kefairport.is Kanon arkitekta www.kanon.is og VSÓ Ráðgjafar www.vso.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 15. júlí 2009.
Skila skal athugasemdum á Bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur
henni.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja


Smellið á myndina til að stækka
Smellið hér til að fá tillöguna á pdf-formi
Smellið hér til að fá auglýsinguna á pdf-formi