2. febrúar 2010
Frá Bókasafni Sandgerðisbæjar

Bókmenntakvöld þriðjudaginn 9. febrúar n.k. kl. 20 í Bókasafni Sandgerðis í Vörðunni, Miðnestorgi 3.
Svanhildur Eiríksdóttir, bókmenntafræðingur kynnir Ólaf Jóhann Sigurðsson og verk hans.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Bókmenntakvöldið er hluti af verkefninu Kynning á bókamenntaarfinum sem almenningsbókasöfnin á Suðurnesjum og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum standa saman að.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.
Til baka
|