25. september 2009
Frá Bæjarbókasafninu

Tilkynning frá Bæjarbókasafni Sandgerðis
Frá 1. október 2009 munu bókasafnsskírteini fyrir fullorðna
kosta kr. 1000. Börn, elli- og örorkulífeyrisþegar fá
frí skírteini eins og áður.
Dagsektir vegna vanskila á bókum eða öðru efni safnsins
hækka úr 15 kr. í 20 kr. pr. dag á hverja bók.
Það er von okkar að fólk sýni þessum breytingum skilning
og haldi áfram að koma í bókasafnið.
Heimsóknir ykkar skipta máli J
bestu kveðjur,
Birna Jakobína og Jóna Kristín
Til baka
|