31. ágúst 2009
Sandgerðisdagar 2009 – Að helgi lokinni
Kæru Sandgerðingar
Framkvæmdarnefnd Sandgerðisdaga og Ferða- og menningarráð vill þakka bæjarbúum fyrir frábæra þátttöku í Sandgerðisdögum 2009. Margir lögðu fram hjálparhönd en þátttaka íbúa við undirbúning og framkvæmd daganna eykst stöðugt. Unga fólkið var sérstaklega áhugasamt um þátttöku í skemmtiatriðunum og viljum við þakka þeim kærlega fyrir. Fjölmörg fyrirtæki styrktu hátíðina og viljum við koma á framfæri þökkum til þeirra.
Hátíðin sjálf og ekki síst undirbúningurinn fyrir hana í vikunni sem var að líða hefur vonandi fært nágranna saman og gert þeim kleift að kynnast hverjum öðrum á annan hátt en í daglegu lífi. Vilji og jákvæðni ykkar er það sem gerir Sandgerðisdaga svona glæsilega og skemmtilega. Bærinn skartaði sínu fínasta pússi og bæjarbúar hafa svo sannarlega sýnt samhug í verki við að gera helgina ógleymanlega.
Græna hverfið hampaði bikarnum í ár. Valið var svo sannarlega erfitt þar sem öll hverfinu voru stórglæsileg og mikið lagt í skreytingarnar. Nefndin var sammála um að græna hverfið ætti skilið að fara heim með bikarinn í ár en minnir enn og aftur á að viðurkenningin er hugsuð til skemmtunar.
Við hvetjum bæjarbúa til að halda skreytingunum uppi fram yfir Ljósanótt, en að þeirri helgi lokinni að vera samtaka í að taka þær niður.
Mikil vinna liggur að baki daganna og því ómetanlegt að sjá svona stóran og glæsilegan hóp koma saman og gleðjast. Við vonum að allir hafi fundið eitthvað við sitt hæfi og séu ánægðir með helgina. Við óskum íbúum til hamingju með frábæra Sandgerðisdaga 2009.
Framkvæmdanefnd Sandgerðisdaga 2009.
Ferða- og menningarráð Sandgerðisbæjar.

Til baka
|