9. júní 2009
Gegn atvinnuleysi
Átak bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar til að minnka atvinnuleysi í bænum.
Ágætu bæjarbúar.
Á fundi bæjarráðs í dag þriðjudaginn 9. júni 2009 verður lagt fram bréf frá Vinnumálastofnun dagsett 5.06.2009. Í bréfinu kemur fram að búið er að fjalla um umsókn bæjarstjórnar og samþykkja þrjú af þeim sjö verkefnum sem deildarstjórar bæjarfélagsins, bæjarstjóri og bæjarráð undirbjuggu.
Um er að ræða;
- Hreinsun heiðarlands og strandlengju.
- Gróðursetningu í landi Sandgerðisbæjar
- Snyrtingu, tyrfingu og frædreifingu í landi Sandgerðisbæjar
Hér er um að ræða 27 störf í þrjá mánuði. Rétt er að minna á ákvörðun bæjarstjórnar að auka við verkefni á árinu 2009 til að skapa vinnu fyrir iðnaðarmenn á svæðinu og má hér nefna byggingu stúku á félagssvæði Reynis og byggingu þjónustuhúss á tjaldsvæði bæjarfélagsins.
Einnig er vert að minna hér á bókun sem gerð var á fundi í bæjarráði þriðjudaginn 26.05.2009, en þar kemur m.a. fram;
1. Meirihluti bæjarstjórnar leggur til við bæjarstjórn að ráðist verði í stækkun á þjónustubyggingu bæjarfélagsins í Miðhúsum á árinu 2009.
Byggingarfulltrúa er falið að gera verkefnið tilbúið til útboðs eigi síðar en um mánaðarmótin ágúst - september.
Áætlaður grófur kostnaður gæti verði um 28 m.kr. og hefur bæjarfélagið fengið styrk í verkefnið að upphæð 8 m.kr. frá ríkisvaldinu. Áætlaður endurgreiddur virðisaukaskattur er um 2.5 m.kr. Áætluð verklok verði miðuð við árslok 2009.
2. Meirihluti bæjarstjórnar leggur til að ráðist verði í aukið viðhald að Garðvegi 1.
Um er að ræða klæðningu á gafl setursins og setja upp svalir sem búið er að fjárfesta í fyrir safnið. Áætlaður kostnaður er um 10 mkr og er endurgreiddur virðisaukaskattur um 1 mkr.
3. Meirihluti bæjarstjórnar leggur til við bæjarstjórn að ráðist verði í yfirlögn á Hlíðargötu í samræmi við fyrirliggjandi tilboð í framkvæmdina. Áætlaður kostnaður er um 10 mkr.
Greinargerð.
Með þessum framkvæmdum er verið að leggja áherslu á og flýta endurreisn atvinnufyrirtækja og atvinnulífs í bæjarfélaginu og þar með á Suðurnesjum. Öllum bæjarbúum er ljóst að atvinnuleysið er hvað mest hér í bæjarfélaginu miðað við önnur sveitarfélög á svæðinu og er samanburður við önnur landsvæði áhyggjuefni allra sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum. Nú eru um 180 manns skráðir atvinnulausir.
Meirihluti bæjarstjórnar leggur einnig áherslu á að allur undirbúningur hefur verið til fyrirmyndar og hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Er varðar Miðhús þá hafa nokkrar lausnir verið til skoðunar.
Fjárhagsáætlun ársins mun ekki taka breytingum þrátt fyrir framkvæmdir sem hér eru kynntat til sögunar. Ástæðan er margþætt en framkvæmdir við Miðhús er eitt þeirra verkefna sem bæjarstjórn lagði áherslu á við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009.
Ljóst er að ekki var gert ráð fyrir endurgreiðslum á virðisaukaskatti við gerð fjárhagsáætlunar 2009 og mun sú endurgreiðsla, sem kemur að mestu frá framkvæmdum við grunnskóla bæjarfélagsins, nema þeirri upphæð sem framkvæmdir við Miðhús mun kosta bæjarfélagið að frádregnum styrk ríkisins.
Við gerð fjárhagsáætlunar var einnig lögð áhersla á hagræðingu á framkvæmdum við grunnskóla bæjarfélagsins og sparnaði. Með þeim aðgerðum hefur tekist að ná fram tilskyldum markmiðum og þannig er hægt að efla atvinnu íbúa bæjarfélagsins markvisst á öðrum sviðum. Sjá einnig átak um þátttöku atvinnuleitenda í bókun bæjarráðs frá þessum fundi og áðurnefnt bréf frá Vinnumálastofnun.
Meirihluti bæjarstjórnar leggur þunga áherslu á að framkvæmdirnar séu réttlætanlegar framkvæmdir miðað við erfitt atvinnuástand, en mun auka við sterka eignamyndun á erfiðum tímum.
Bæjarsjóður mun ekki taka lán á árinu 2009 til framkvæmda.
Bæjarfulltrúar Sandgerðisbæjar voru einhuga í þeirri ákvörðun að bæjarfélagið ætti að stuðla að hærra atvinnustigi í bæjarfélaginu í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði.
Þessar ákvarðanir bæjarstjórnar eru því viðleitni af hálfu bæjarfélagsins í baráttunni við aukið atvinnuleysi bæjarbúa. Ef ekkert er að gert mun atvinnuleysið hafa veruleg áhrif á mannlíf og framtíðaráform bæjarbúa.
Önnur sumarkveðja
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Til baka
|