17. febrúar 2009
Atvinnuauglýsing

Starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu í Sandgerði
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir að ráða starfsmann í félagslegri heimaþjónustu. Um er að ræða afleysingu vegna fæðingarorlofs í 50% starf sem snýr að almennum heimilisþrifum en verkefnin geta verið mjög einstaklingsbundin allt eftir þörfum þjónustuþega. Mikilvægt er að viðkomandi starfsmaður hafi áhuga og ánægju af mannlegum samskiptum. Æskilegt væri að viðkomandi hafi reynslu af því að starfa með fólki. Hægt er að nálgast atvinnuumsókn á heimasíðu Sandgerðisbæjar.
Umsóknarfrestur er til 25. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Hjartardóttir, félagsmálastjóri eða Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi í síma 420-7555.
Til baka
|