5. febrúar 2009
ATVINNUAUGLÝSING FRÁ VINABÆ SANDGERÐISBÆJAR
Atvinnuauglýsing
Yfirmaður tæknideildar bæjarfélagsins Vágs í Færeyjum.
Vágur í Færeyjum er vinabær Sandgerðisbæjar.
Bæjarfélagið Vágur í Færeyjum auglýsir stöðu yfirmanns Tæknideildar bæjarins.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Forstöðumaður Tæknideildar stýrir daglegu starfi Tæknideildar Vágs og er ritari Tækninefndar (Byggingarnefndar).
Í starfinu felst eftirfarandi:
· undirbúningur og stjórnun verklegra þátta bæjarfélagsins.
· að sjá um og hafa umsjón með skráning tæknilegra upplýsinga
· málameðferð leiðbeiningar og ráðgjöf.
· endurskoðun/þróun á gildandi byggingarsamþykkt/bæjarskipulagi
· skipulag verkefna og eftirlit
· að undirbúa útboð og gefa umsagnir til viðkomandi nefnda bæjarins
· mælingar og úttektir
Bærinn gerir eftirfarandi hæfniskröfur
· viðkomandi hafi menntun sem hæfir verksviðinu svo sem byggingarfulltrúi, verkfræðingur, tæknifræðingur, vélfræðingur eða samsvarandi.
· geti unnið sjálfstætt
· hafi góða tölvuþekkingu og geti notað ritvinnslu og teikniforrit
· hafi góða samskiptahæfileika bæði munnlega og skriflega
· hafi samstarfs- og tillöguhæfni og góða samningahæfni
· Krafa er gerð um að viðkomandi geti tjáð sig á færeysku (eða skandinavisku).
Laun og starfsskilyrði
· Starfið er framtíðarstarf og heyrir undir bæjarstjóra
· Laun eru samkvæmt samningum milli KAF (launanefnd sveitarfélaga) og viðeigandi stéttarfélags
Bæjarfélagið Vágur áskilur sér rétt til að velja milli umsókna eða hafna öllum.
Umsóknir ásamt prófskírteinum og upplýsingum um starfsreynslu þarf að senda í síðasta lagi 20. febrúar til:
Vágs kommuna
Vágsvegur 22
900 Vágur
Føroyar
Nánari upplýsingar um starfið fást með því að snúa sér til Kirstin Strøm Bech, bæjarstjóra í síma: 00298 373024, netfang: kirstin@vagur.fo eða til Danjal Bjarkhamar formanns tækninefndar í síma: 00298 373755.
Vágs kommuna
http://www.vagur.fo/ 
Til baka
|