29. janúar 2009
Lífshlaup ÍSÍ

Lífshlaupið er hvatningar- og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og verður formlega ræst í annað sinn miðvikudaginn
4. febrúar 2009. Þátttakendur voru um 7.700 þegar Lífshlaupið fór fram í fyrsta skipti.
Hægt er að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst
þátttakendum kostur á að taka þátt í:
- vinnustaðakeppni frá 4. – 24. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
- hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 4. – 24. febrúar, fyrir 15 ára og yngri
- einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð niður sína hreyfingu allt árið.
Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um hreyfingu þar sem börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í
minnst 60 mínútur á dag og fullorðnir í minnst 30 mínútur á dag.
Við hvetjum alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega
stemningu og auka félagsandann á sínum vinnustað. Því óskum við eftir liðsinni ykkar til að
hvetja ykkar fólk til þátttöku.
Kynnið ykkur þátttökureglur og skráningu á vefsíðu Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is
Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Heilbrigðisráðuneytið,
Menntamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Skýrr, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri
almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4000 eða jona@isi.is
Til baka
|