19. janúar 2009
Starf tilsjónarmanns
Tilsjónarmaður
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga óskar eftir því að ráða starfsmann í tilsjón til að aðstoða foreldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldum sínum. Um er að ræða áhugavert og gefandi starf í formi stuðnings við einstaklinga og fjölskyldur. Unnið er skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002.
Leitað er eftir fólki með nauðsynlega þekkingu og hæfni til að mæta þörfum barns og foreldra hverju sinni.
Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2009.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Pétursdóttir, ráðgjafi og Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi í síma 420-7555.
Til baka
|