19. janúar 2009
Starf við Liðveislu
Sandgerðisbær óskar eftir ungu fólki
með hjartað á réttum stað !
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar óskar eftir að ráða starfsmenn til að sinna starfi liðveitanda.
Liðveisla er áhugavert og gefandi starf sem felst í því að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun einstaklings með fötlun. Um er að ræða aðstoð til að njóta menningar og félagslífs og auka félagslega færni einstaklingsins svo dæmi sé tekið.
Starfið getur því verið mjög einstaklingsbundið þar sem þarfir þjónustuþega eru hafðar að leiðarljósi.
Starf sem þetta er tilvalið fyrir skólafólk þar sem um er að ræða hlutastarf þar sem vinnutími er sniðinn eftir þörfum allra aðila. Umsóknir þurfa að berast fyrir 11. febrúar 2009.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Siguðarðdóttir, félagsráðgjafi
eða Sigrún Pétursdóttir ráðgjafi hjá
Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga í síma 420-7555.
Til baka
|