|

Sveitarfélögin Sandgerðisbær, Garður og Vogar mynda saman eitt félagsþjónustusvæði.
Félagsþjónustan veitir íbúum sveitarfélaganna ráðgjöf um félagsleg réttindamál og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda. Félagsþjónustan veitir einnig þjónustu á sviði málefna barna og ungmenna, aldraðra og fólks með fötlun eins og nánar er tilgreint í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra og lögum um málefni fatlaðs fólks nr 59/1992.
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga leitast við að tryggja íbúum bæjarfélaganna félagslegt öryggi með heildstæðri félagslegri þjónustu þar sem lögð er áhersla á að réttur íbúa sé alltaf ljós og einstaklingum ekki mismunað með geðþóttaákvörðunum. Þjónustan er opin öllum bæjarbúum og er áhersla lögð á að mæta einstaklingum af virðingu og í fullum trúnaði. Jafnframt er lögð áhersla á að hjálpa einstaklingum til sjálfshjálpar, bæði með ráðgjöf og öðrum viðeigandi stuðningi.
Símatími rágjafa er alla virka daga milli kl 11 og 12. Símanúmer félagsþjónustunnar er 420 7555.
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga sinnir einnig barnaverndarstarfi í sveitarfélögunum, á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002. Barnavernd miðar að því að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð með því að styrkj fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.
Skammtímavistunin Heiðarholt
Fjölskyldu- og velferðarnefnd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga
Hvernig er barnaverndartilkynningu komið á framfæri?
Gjaldskrá
Reglur
Eyðublöð
Starfsfólk
|