Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

FORSÍÐAFYRIRSPURNIRVEFTRÉPRENTA

EFNISVAL



Þú ert hér > Sandgerdi.is > Fréttir

Fréttir

14.6.2013 12:07:10
Unnið að fegrun bæjarins fyrir þjóðhátíð

Unnið hefur verið ötullega að fegrun bæjarins undanfarið með það markmið að hann líti sem best út á þjóðhátíðardag Íslendinga þann 17. júní.

Kvenfélagið Hvöt verður með kaffisölu í Hvatarkoti (gamla kaupfélaginu) á þjóðhátíðardaginn frá kl. 15:00 - 17:00. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og skoða nýja aðstöðu félagsins og njóta góðra veitinga.

Sandgerðisbær óskar bæjarbúum til hamingju með þjóðhátíðardaginn.


13.6.2013 10:14:46
Auglýst eftir hafnarverði við Sandgerðishöfn

Laus er til umsóknar staða hafnarvarðar við Sandgerðishöfn.

Nánari upplýsingar veitir Grétar Sigurbjörnsson, verkefnastjóri atvinnu- og hafnarmála, í síma 420-7477 eða 899-6306.

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 21. júní nk.

 

 

12.6.2013 10:10:20
Nemendaheimsóknir í Þekkingarsetur Suðurnesja

Yfir 1.000 leik- og grunnskólanemendur af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu hafa heimsótt Þekkingarsetur Suðurnesja hér í Sandgerði á síðustu vikum. http://www.thekkingarsetur.is/

12.6.2013 09:50:58
Laus pláss í tónlistarskólanum.

Nú er tækifæri!

Það eru nokkur pláss laus á gítar, rafmagnsgítar og trommur í Tónlistarskóla Sandgerðis næsta skólaár.

Hægt er að sækja um rafrænt eða prenta út umsóknareyðublað á heimasíðu skólans, tonosand.is. Einnig er velkomið að hafa samband við skólastjóra, Lilju Hafsteinsdóttur, í síma 899-6357.

11.6.2013 13:45:40
Kvennahlaup 2013

Ágætis þátttaka var í Kvennahlaupinu hér í Sandgerði á laugardaginn og þátttakendur á öllum aldri.
Þetta var í 24. sinn sem Kvennahlaup Sjóvár og ÍSÍ er haldið og var hlaupið á 81 stað á landinu. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Sjóvár tóku 14 þúsund konur þátt í hlaupinu.
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar sá um undirbúning Kvennahlaupsins og eru þeim færðar þakkir fyrir.  

5.6.2013 19:08:58
Skráning stendur yfir í skólagarða, leikjanámskeið, fjörnámskeið og kofabyggð

Skráning stendur yfir í skólagarða, leikjanámskeið, fjörnámskeið og kofabyggð. Athygli er vakin á því að skráningarfrestur í skólagarða hefur verið framlengdur til 7. júní. Gróðursetning fer fram 10. júní. Skráningarblöð fást á bæjarskrifstofu og á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is.
Íbúum bæjarins er gefinn kostur á að leigja garða til ræktunar í sumar. Upplýsingar á bæjarskrifstofu í síma 420-7555 eða á netfanginu
sandgerdi@sandgerdi.is.

5.6.2013 14:01:53
Aflakóngar í Sandgerði árin 1939 -1991

Börn Þórhalls Gíslasonar, fyrrum skipstjóra frá Sandgerði og Ástrúnar Jónasdóttur heitinnar, afhentu Sandgerðisbæ nýverið glæsilega gjöf við hátíðlega athöfn í Þekkingarsetrinu. Gjöfin er myndarlegur granítsteinn með nöfnum báta og aflakónga á vetrarvertíðum í Sandgerði á árunum 1939-1991 en Þórhallur var nokkrum sinnum aflahæsti skipstjórinná þessu 52 ára tímabili.

3.6.2013 14:44:42
Kvennahlaupið í Sandgerði

Kvennahlaupið í Sandgerði verður laugardaginn 8. júní.

Hlaupið er frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Upphitun fyrir hlaup er undir stjórn Guðrúnar Óskar Gunnlaugsdóttur.

Vegalengdir í boði eru 1,5 km., 3 km. og 5 km

Verð á bolum: 12 ára og eldri kr. 1.500, yngri en 12 ára kr. 1.000.
Skráning er hafin í Íþróttamiðstöðinni og eru konur hvattar til að skrá sig sem fyrst.
3.6.2013 12:03:38
335. fundur bæjarstjórnar

335. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í Vörðunni, Miðnestorgi 3, miðvikudaginn 5. júní 2013 og hefst kl. 17:30

31.5.2013 10:00:12
Sjómannadagurinn á sunnudag

Sjómannadagsmessa verður haldin í Hvalsneskirkju kl. 11 á sunnudaginn. Að lokinni messu leggja félagar í björgunarsveitinni Sigurvon blómsveig við minnisvarðann um drukknaða sjómenn í Hvalsneskirkjugarði. Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson predikar og þjónar fyrir altari, og söngsveitin Víkingar syngur undir stjórn Steinars Guðmundssonar.



<<Fyrri      Næsta>>





Til baka















Strætóferðir



Sandgerðisbær | Varðan, Miðnestorg 3 | 245 Sandgerði | Sími 420 7555 | Fax 423 7809 | Netfang: sandgerdi@sandgerdi.is