Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

FORSÍÐAFYRIRSPURNIRVEFTRÉPRENTA

EFNISVAL









22.5.2013 21:29:35
Sumarvinna Sandgerðisbæjar

Sandgerðisbær býður ungmennum á aldrinum 17 til 20 ára vinnu í sumar.
Helstu verkefni eru snyrting og umhirða bæjarlandsins.
Aðeins er hægt að taka inn takmarkaðan fjölda einstaklinga.
Forgang að vinnu hafa þeir sem eru 17 ára, þá þeir sem eru 18 ára og svo framvegis.
Umsóknareyðublöð fást á heimasíðu Sandgerðisbæjar http://www.sandgerdi.is og á bæjarskrifstofunni.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 30. maí.

22.5.2013 17:52:18
Gleðigjafar á vortónleikum

Vortónleikar og skólaslit Tónlistarskóla Sandgerðis fóru fram í Safnaðarheimilinu í Sandgerði fimmtudaginn 16. maí.

Athöfnin hófst með því að skólastjóri fór í stuttu máli yfir starf skólaársins, síðan tóku nemendur við og léku af sinni alkunnu snilld á hljóðfærin sín. Upphafsatriði tónleikanna var samspil allra gítarnemenda skólans, fyrir valinu var lag frá Perú, Dansa Peruviana, sem hljómaði vel í eyrum og gestir klöppuðu nemendum lof í lófa fyrir flutninginn. Dagskráin var fjölbreytt og byggðist að miklu leyti upp á samspili, í lokin stóðu allir nemendur uppi sem sigurvegarar og sannir gleðigjafar eftir frábæra frammistöðu.

14.5.2013 11:12:00
Atvinna – ný spennandi sumarstörf fyrir námsmenn

Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Sandgerðisbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem tekur þátt í verkefninu og mun bjóða atvinnuleitendum sem voru að ljúka námi og munu halda áfram í námi í haust störf. Námsmenn verða að hafa lögheimili í Sandgerðisbæ til þess að geta sótt um þessi störf.

Umsóknarfrestur um öll störf er til 27. maí n.k. og skal umsóknum skilað á skrifstofu Sandgerðisbæjar eða senda á sandgerdi(hjá)sandgerdi.is


ELDRI FRÉTTIR FUNDARGERÐIR
















Strætóferðir



Sandgerðisbær | Varðan, Miðnestorg 3 | 245 Sandgerði | Sími 420 7555 | Fax 423 7809 | Netfang: sandgerdi@sandgerdi.is